Ofsaveðri spáð á morgun – appelsínugul viðvörun í gildi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir morgundaginn um allt norðvestanvert landið, Vesturland og miðhálendið. Það verður suðaustan 20-28 m/s og talsverð rigning. Búast má við mjög hvössum og varhugaverðum vindhviðum við fjöll staðbundið yfir 35 m/s, t.d. á Kjalarnesi, við Hafnarfjall, á norðanverðu Snæfellsnesi, í Dölum og Barðaströnd. Það verður ekkert ferðaveður og nauðsynlegt að tryggja lausamuni. Nokkuð er misjafnt hvenær veðrið gengur yfir, en búast má við versnandi veðri strax í fyrramálið. Annað kvöld ganga viðvaranir niður og er fólk hvatt til að fylgjast með veðurspám og fréttu.\r\n\r\nBúast má við auknu afrennsli og vatnavöxtum sem getur valdið tjóni. Fólk er hvatt til að hreinsa frá niðurföllum.",
"innerBlocks": []
}
Ofsaveðri spáð á morgun – appelsínugul viðvörun í gildi - Skessuhorn