Dúi J. Landmark. Ljósm. frg.

Dúi er nýr upplýsingafulltrúi matvælaráðuneytisins

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skagamaðurinn Dúi J. Landmark hefur verið ráðinn nýr upplýsingafulltrúi matvælaráðuneytisins. Dúi er með diplóma í frönsku og markaðs- og útflutningsfræðum og hefur fjölbreytta reynslu úr kynningarmálum og fjölmiðlum. Hann hefur undanfarið starfað sem verkefnastjóri miðlunar hjá Landgræðslunni. Frá 1991 hefur hann starfað við sjálfstæða framleiðslu fyrir innlendar og erlendar sjónvarpsstöðvar, bæði í handritaskrifum og myndgerð, meðal annars fyrir Stöð 2. Hann er einnig höfundur bókarinnar Gengið til rjúpna og var áður formaður Skotvís.\r\n\r\nNýtt matvælaráðuneyti tók til starfa í febrúar og er unnið að matvæla og fæðuöryggi Íslands samkvæmt hugmyndafræði einnar heilsu. „Íslenskur landbúnaður, sjávarútvegur og fiskeldi mynda þungamiðjuna í innlendri framleiðslu matvæla og hafa mikil og sterk tengsl við atvinnu fólksins í landinu. Með ráðuneyti matvæla gefst tækifæri til að leggja áherslu á matvælaframleiðsluna, nýsköpun og eflingu loftslagsmála og bæta þar með lífsskilyrðin í landinu okkar enn frekar. Markmiðið er að hér sé gott að búa og starfa, þannig að hér ríki velsæld og jöfnuður og að þannig verði það áfram fyrir kynslóðir framtíðarinnar,“ segir Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra.",
  "innerBlocks": []
}