
Tríóið Sírajón kemur fram á tónleikum Listafélagsins Kalmans næstkomandi fimmtudagskvöld klukkan 20 í Vinaminni á Akranesi. Tríóið skipa þau Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari, Einar Jóhannesson klarínettuleikari og Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanóleikari. Sviðstónlist úr leikhúsinu rammar inn efnisskrá Tríós Sírajóns með mörgum stuttum og hnyttnum þáttum í verkum Poulencs og Hjálmars H. Ragnarssonar. Þar á milli flytja…Lesa meira








