Fréttir

true

Loðna inn og mjöl út

Síðastliðinn laugardagsmorgun kom loðnuveiðiskip Brims, Svanur RE, til hafnar á Akranesi með loðnu. Á hinum hafnarkantinum lá svo við kaja Wilson Garston sem var að lesta loðnumjöli sem framleitt hefur verið á vertíðinni. Nú er loðnuvertíðin í hámarki, unnið á vöktum við hrognafrystingu og bræðslan stöðugt í gangi.Lesa meira

true

Kindurnar komu sér í skjól fyrir stærsta hvellinn

Veðurklúbburinn á Dalbæ á Dalvík er fyrir löngu orðinn landsþekktur. Þar spá menn og spekúlera, lesa jafnvel í garnir og spá um veðrið. Í fundargerð frá 4. mars síðastliðnum segir: „Við gætum nánast afritað hingað síðustu fundargerð því veðurspá marsmánaðar hljómar mjög svipað og sú síðasta, þó úrkoma hérna á Dalvík í mars verði ekki…Lesa meira

true

Að gleðjast og láta gott af sér leiða er markmið Club71

Á dögunum hélt drengja-hluti Club71 aðalfund sinn. Club71 er félagsskapur úr árgangi fólks fæddum 1971 á Akranesi og er markmiðið að sameina það að gleðjast og láta gott af sér leiða í leiðinni. Á aðalfundinn að þessu sinni mætti fjölda góðra gesta en boðið var upp á kótelettur í raspi og tilheyrandi meðlæti. Heiðursgestir voru…Lesa meira

true

Rafmagnslaust í Kolbeinsstaðarhrepp

Rarik kynnir að rafmagnsbilun er nú gangi í Kolbeinsstaðarhreppi, frá Hraunholti að Hallkelsstaðahlíð. „Unnið er að viðgerð og vonast er að rafmagn komi á klukkan um kl. 18 Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt Rarik Vesturlandi í síma 528-9390 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rofLesa meira

true

Tónleikar í kvöld til minningar um Hallbjörgu Bjarnadóttur

Í október á síðasta ári auglýstu Rótarýklúbbur Akraness og Tónlistarskólinn á Akranesi tónleika sem halda átti til minningar um Hallbjörgu Bjarnadóttur (1917–1997) söngkonu og frumkvöðul í djasstónlist á Íslandi. Hún ólst upp á Akranesi og átti þar heima fram á unglingsár. Tónleikarnir áttu að vera hluti af dagskrá Vökudaga. Þegar þeir dýrðardagar voru nýgengnir í…Lesa meira

true

Veik von Skagamanna orðin ansi lítil

ÍA tók á móti liði Hamars í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Heimamenn áttu möguleika á að minnka bilið á milli þeirra og Hamars niður í tvö stig með sigri og eygja þar með smá möguleika að halda sæti sínu í deildinni. Gestirnir…Lesa meira

true

Líklega ein mesta fjölgun atvinnutækifæra á Vestfjörðum í áratugi

Nú um helgina auglýsir fiskeldisfyrirtækið Arnarlax, sem er með höfuðstöðvar sínar á Bíldudal, eftir fólki í 37 laus störf. Þar af eru langflest störfin, eða 31 talsins, á Vestfjörðum og er því líklega um að ræða mestu fjölgun atvinnutækifæra á Vestfjörðum í áratugi. Óskað er eftir fólki í fjölbreytt sérfræðistörf, allt frá eldisbændum til mannauðsstjóra.…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður leitar að íbúðarhúsnæði fyrir flóttafólk frá Úkraínu

Akraneskaupstaður óskar eftir upplýsingum um mögulegt leiguhúsnæði, íbúðarhúsnæði/herbergi, í sveitarfélaginu þar sem íslensk stjórnvöld vinna nú að undirbúningi móttöku flóttafólks frá Úkraínu á næstu dögum. Þetta kemur fram á vefsíðu sveitarfélagsins. Þeir sem hafa upplýsingar um laust íbúðahúsnæði í sveitarfélaginu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Akraneskaupstað með því að senda upplýsingar á…Lesa meira

true

Hvassviðri við Breiðafjörð síðdegis á morgun

Frá því um miðjan dag á morgun, laugardag og fram á kvöld er gul viðvörun fyrir Breiðafjörð. Spáð er suðaustan 18-25 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi með talsverðri rigningu og asahláku. Heldur hægari vindur og úrkomuminna verður annars staðar á svæðinu. Þessu fylgir að akstursskilyrði verða varasöm. Fólk er hvatt til að huga að niðurföllum.Lesa meira

true

Loka deild vegna raka á leikskólanum Skýjaborg

Hvalfjarðarsveit fékk nýverið Verkís til að gera úttekt á húsnæði leikskólans Skýjaborgar með tilliti til hugsanlegra rakaskemmda. Starfsmaður á vegum Verkís tók húsnæðið út í gær, fimmtudag og var tveimur rýmum á yngri deild skólans lokað í kjölfarið. „Öðru rýminu var lokað af öryggisástæðum því börnin leggja sig þar,“ segir Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri í…Lesa meira