Leikskólinn Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. arg.

Loka deild vegna raka á leikskólanum Skýjaborg

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hvalfjarðarsveit fékk nýverið Verkís til að gera úttekt á húsnæði leikskólans Skýjaborgar með tilliti til hugsanlegra rakaskemmda. Starfsmaður á vegum Verkís tók húsnæðið út í gær, fimmtudag og var tveimur rýmum á yngri deild skólans lokað í kjölfarið. „Öðru rýminu var lokað af öryggisástæðum því börnin leggja sig þar,“ segir Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri í samtali við Skessuhorn. Ekki hefur verið staðfest hversu mikill rakinn er eða hvort um sé að ræða myglu. „Við eigum eftir að fá ástandsskýrslu og það hefur því ekkert verið staðfest. En við bregðumst bara strax við og lokum þessari deild og byrjum á þessu verkefni strax á mánudaginn. Þá verður rifið upp eins og þarf til að finna rót vandans og svo byggjum við upp aftur,“ segir Linda.\r\n\r\nSkýjaborg er tveggja deilda leikskóli og segir Linda að líklegast verði yngri börnin færð yfir á eldri deildina og fundin verður önnur lausn fyrir eldri börnin. „Þetta var allt bara að gerast og það verður verkefni helgarinnar að finna lausn á þessu. Ég geri ekki ráð fyrir öðru en öll börnin geti mætt í leikskólann á mánudaginn, spurningin er bara hvar,“ segir Linda og bætir við að hún geti ekkert sagt til um hversu langan tíma þessar framkvæmdir geta tekið. „Við vitum ekkert um umfangið eða hvað tekur á móti okkur þegar byrjað verður að rífa.“",
  "innerBlocks": []
}
Loka deild vegna raka á leikskólanum Skýjaborg - Skessuhorn