Fréttir

true

Gestirnir úr Vopna báru sigur úr býtum á Vesturlandsmótinu

Vesturlandsmótið í sveitakeppni í bridds fór fram á laugardaginn. Spilað var á Akranesi og tóku sex sveitir þátt. Gestrisnin var mikil á mótinu, því sveit Vopna bar sigur úr býtum með fáheyrðum yfirburðum, eða 87,6 stigum. Sveitina skipuðu þeir Matthías Imsland, Ómar Olgeirsson, Stefán Jónsson, Ísak Örn Sigurðsson og Gunnar B Helgason. Sveit Guðmundar Ólafssonar…Lesa meira

true

Rebekka Rán er Íþróttamaður Snæfells 2021

Körfuknattleikskonan Rebekka Rán Karlsdóttir hefur verið valin Íþróttamaður Snæfells fyrir árið 2021. Þetta var tilkynnt á sunnudaginn í hálfleik Snæfells og Ármanns í 2. deild karla. Rebekka Rán er fyrirliði Snæfells sem leikur í 1. deild kvenna og er ein af máttarstólpum liðsins. Hún er fyrirmynd innan vallar sem utan, frábær liðsmaður og enn betri…Lesa meira

true

Miðbæjarsamtökin stilla saman strengi

Í gær hittust til skrafs og ráðagerða stofnfélagar í Miðbæjarsamtökunum Akratorgi á Akranesi, þeir sem áttu heimagengt. „Mikil stemning er í þessum hóp til að gera eitthvað skemmtilegt til að auka lífið í miðbænum. En eitt að því sem búið er að gera er að taka viðtal við arkitektinn að Landsbankahúsinu en samtökunum er mikið…Lesa meira

true

Sigur hjá Kára en tap hjá ÍA og Víkingi Ó í Lengjubikarnum

Knattsyrnulið Kára lék gegn Víði í Lengjubikarnum á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Kári komst yfir á 26. mínútu með marki frá Ingimar Elí Hlynssyni og mínútu síðar dró til tíðinda þegar Arnór Björnsson, leikmaður Víðis, fékk beint rautt spjald. Andri Júlíusson bætti við öðru marki fyrir Kára fyrir hálfleik en Víðir minnkaði…Lesa meira

true

Venus kom til hafnar í gærkvöldi

Venus NS kom með loðnufarm klukkan 21 í gærkvöldi á Akranes. Aflinn fékkst í nót út á Breiðafirði. Nú styttist í að hrognafrysting geti hafist. Samkvæmt Marine Traffic eru loðnuskipin nú ýmist að veiðum vestan við Vestmannaeyjar, en nokkur eru á Breiðafirði.Lesa meira

true

Veðurstöðvar sem allir geta fylgst með

Nú þegar lægðirnar ganga yfir landið hver af annarri er mikilvægt að fylgjast vel með veðri og vindum áður en haldið er af stað út úr húsi. Auk hefðbundinna veðurstöðva hjá Veðurstofu Íslands og Vegagerðinni er að finna einkareknar veðurstöðvar víðsvegar í landshlutanum. Elmar Snorrason á Leirá í Hvalfjarðarsveit heldur utanum upplýsingar frá nokkrum einkareknum…Lesa meira

true

Mesti snjóruðningur í áratug í Snæfellsbæ

Fyrirtækið B. Vigfússon sér um snjómokstur í Snæfellsbæ og eru starfsmenn þess vel útbúnir til þeirra verka. „Við erum með tvo traktora með fjölblásara að aftan og svo snjótennur að framan og eina traktorsgröfu að auki,“ segir Vigfús Þráinn Bjarnason snjóruðningsmaður í samtali við Skessuhorn. Hann segir jafnframt að þeir sjái nú tímabundið um snjóruðning…Lesa meira

true

Strætó út af í gærkvöldi og ferð felld niður í morgun

Strætó á leið 57, Reykjavík – Akranes, fór út af í gærkvöldi á Kjalarnesi, milli Mógilsárs og Grundarhverfis. Veður var mjög slæmt þegar óhappið varð. Engan sakaði. Mjög hvasst var á svæðinu í alla nótt og er vegurinn um Kjalarnes nú lokaður fyrir umferð. Fyrsta strætóferð dagsins var því felld niður í morgun. Á vef…Lesa meira

true

Gera ríflega eina bollu á hvern íbúa

Það var líf og fjör í Kallabakaríi á Akranesi á áttunda tímanum í morgun þegar blaðamaður Skessuhorns leit þar við við upphaf bolludags. Framleiðsla á allskyns bollum var í fullum gangi í bakaríinu og þegar komin biðröð af viðskiptavinum frammi í búð. Allt gekk þetta þó ljúft fyrir sig. Fyrstu bakarar mættu til vinnu klukkan…Lesa meira

true

Vegir lokaðir og ekkert ferðaveður fyrir hádegi

Enn ein lægðin gengur nú yfir vestanvert landið og er gul viðvörun nú í gildi við Faxaflóa og appelsínugul viðvörun við Breiðafjörð. Norðaustan 20-28 m/s og snarpar vindhviður eru við Breiðafjörð fram að hádegi í dag, hvassast norðantil á svæðinu. Þá má búast við snjókomu og skafrenningi með lélegu skyggni. Viðvörunarstigið færist niður í gula…Lesa meira