{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Það var líf og fjör í Kallabakaríi á Akranesi á áttunda tímanum í morgun þegar blaðamaður Skessuhorns leit þar við við upphaf bolludags. Framleiðsla á allskyns bollum var í fullum gangi í bakaríinu og þegar komin biðröð af viðskiptavinum frammi í búð. Allt gekk þetta þó ljúft fyrir sig. Fyrstu bakarar mættu til vinnu klukkan tvö í nótt og svo kom annar hópur að auki klukkan fimm. Bakari sem blaðamaður ræddi við sagði að planið fyrir daginn hafi verið að baka um átta þúsund bollur, en það er ríflega íbúafjöldi í bæjarfélaginu. Vatnsdeigsbollurnar eru langvinsælastar, en með fyllingu og hjúp í allskyns bragðtegundum. Sú hefðbundna, með rjóma og sultu og skreytt glassúr, er þó enn sú vinsælasta.\r\n\r\n[gallery size=\"medium\" ids=\"51499,51500,51501,51502,51503,51504\"]",
"innerBlocks": []
}