Fréttir

true

Var dregin út í eldvarnagetraun

Verðlaun voru veitt í síðustu viku í eldvarnagetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutingsmanna. Sigurður Þór Elísson eldvarnaeftirlitsmaður hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðar fór þá í Grundaskóla og afhenti Laufeyju Svanbergsdóttur nemanda í 3. bekk verðlaun. Nafn hennar hafði verið dregið út og fékk Laufey að launum viðurkenningarskjal og gjafakort í Spilavinum.Lesa meira

true

Góufagnaður eldri borgara í Hvalfjarðarsveit

Miðvikudaginn 2. mars verður Góufagnaður eldri borgara haldinn í Miðgarði og hefst skemmtunin klukkan 17. Veislustjóri verður Sveinbjörn Grétarsson eða Bjössi Greifi. Hann spilar, syngur og skemmtir gestum fram á kvöld. Þá kemur Gunnar Straumland og kveður vísur. Veislumatur frá Galito verður á boðstólnum. Miðaverð er 5000 og greiðist við innganginn en ekki verður posi…Lesa meira

true

Aþena með sigur á Snæfelli í hörkuleik

Snæfell og Aþena-UMFK áttust við í gær í 1. deild kvenna í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Stykkishólmi. Fyrir fram var búist við hörkuleik enda bæði lið í efri hluta deildarinnar, Snæfell með 20 stig og Aþena með 16 stig og liðin í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Sú varð raunin og meira…Lesa meira

true

Heima-Skagi fyrir börnin næsta laugardag

Fjölskyldutónleikar með Svavari Knúti & Valgerði Jónsdóttur bæjarlistamanni Akranes 2021 verða í Akraneskirkju laugardaginn 5. mars klukkan 17:00. Tónleikarnir eru liður í Barnamenningarhátíð Vökudaga og eru styrktir af Akraneskaupstað. Fresta þurfti skemmtuninni í nóvember síðastliðnum vegna samkomutakmarkana, en nú er lag. „Fögnum æskunni og fyllum kirkjuna af börnum, söng og gleði,“ segir í tilkynningu. Aðgangur…Lesa meira

true

Norðaustan hríðarveðri spáð

Nú er spáð óveðri víða um land í kvöld og fyrramálið, mánudag, en að þessu sinni verður austan- og norðaustanstæð vindátt. Fyrst mun bresta á með hríðarveðri í Mýrdal á milli klukkan 19 og 21 í kvöld. Hvellurinn gengur síðan til austurs og norðurs í nótt og veldur almennri ófærð mjög víða á landinu. Skafrenningur…Lesa meira

true

Skagamenn stóðu í Álftnesingum

Álftanes og ÍA áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Forsetahöllinni syðra. Heimamenn komust fljótlega í 12:2 í leiknum og Skagamenn hálf ráðvilltir en staðan eftir fyrsta leikhluta var 30:18 Álftanesi í vil. Þessi slaka byrjun ÍA varð þeim að falli í leiknum því þeir voru síst…Lesa meira

true

Skallagrímur átti ekki möguleika gegn Haukum

Skallagrímur og Haukar mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Haukar voru fyrir leikinn í efsta sæti deildarinnar ásamt Hetti frá Egilsstöðum en þessi tvö lið eru nánast örugg um að komast upp í Subway deildina þegar mótinu lýkur í lok mars. Skallagrímur situr sem…Lesa meira

true

Gefa starfsfólki hlutabréf sem þakklætisvott fyrir vel unnin störf

Rekstrartekjur sjávarútvegsfyrirtækisins Brims á síðasta ári voru 387,9 milljónir evra, eða um 55 milljarðar króna, samanborið við 292,4 milljónir evra árið 2020. Hagnaður ársins í fyrra var 75,2 milljónir evra sem jafngildir á núverandi gengi 10,7 milljörðum króna, en var 4,2 milljarðar króna árið 2020. Stjórn Brims hefur ákveðið að afhenda fastráðnu starfsfólki hjá félaginu…Lesa meira

true

Ástin blómstraði sem aldrei fyrr í Akraneskirkju

Síðastliðinn þriðjudag, 22.02.2022, voru áætluð alls fjórtán svo kölluð „drop in“ brúðkaup í Akraneskirkju. Í þeim hópi voru meðal annars nýgiftu hjónakornin Haraldur Valtýr Hinriksson og Elísabet Sæmundsdóttir sem tóku þá ákvörðun fyrir stuttu að gifta sig á þessari flottu dagsetningu. Þess má geta að þau trúlofuðu sig fyrir tveimur árum, nánar tiltekið þann 20.02.2020.…Lesa meira

true

Fólk er beðið að fara sparlega með rafmagn

Vesturland er komið á varatengingu og varaafl rafmagns og biðlar Rarik til notenda um að fara sparlega með rafmagn fram á kvöld. Til dæmis er fólk beðið um lágmarka eldamennsku. Kort af svæði má sjá á http://rarik.is/rofLesa meira