Skallagrímur átti ekki möguleika gegn Haukum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skallagrímur og Haukar mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Haukar voru fyrir leikinn í efsta sæti deildarinnar ásamt Hetti frá Egilsstöðum en þessi tvö lið eru nánast örugg um að komast upp í Subway deildina þegar mótinu lýkur í lok mars. Skallagrímur situr sem fastast í sjöunda sætinu og hefur nú tapað þremur leikjum í röð í deildinni. Heimamenn byrjuðu þó ágætlega í leiknum í gær og voru með 15:9 forystu eftir rúmlega fimm mínútna leik. En þá hrökk allt í baklás og gestirnir skoruðu sextán stig gegn aðeins tveimur stigum heimamanna það sem eftir lifði fyrsta leikhluta og staðan allt í einu orðin 17:25 Haukum í vil. Haukar slepptu ekki takinu í öðrum leikhluta, herjuðu vel á heimamenn og juku forskotið enn meir, staðan í hálfleik 32:56 fyrir gestina.\r\n\r\nUm miðjan þriðja leikhluta voru Haukar komnir með 26 stiga forystu og ljóst að sigurinn væri í höfn en aðeins spurning hvað hann yrði stór. Þegar flautað var til loka þriðja leikhluta var staðan orðin 59:91 og allt útlit fyrir að heimamenn yrðu rassskelltir af gestunum. En Skallagrímur náði að halda í við Hauka í fjórða leikhluta, bæði lið skoruðu 20 stig hvort og lokatölur leiksins 79:111 fyrir Hauka.\r\n\r\nStigahæstir í liði Skallagríms voru þeir Simun Kovac með 18 stig, Arnar Smári Bjarnason var með 14 stig og Ólafur Þorri Sigurjónsson með 12 stig. Hjá Haukum var Jeremy Smith með 26 stig, Jose Aldina með 20 stig og 15 stoðsendingar og Bragi Guðmundsson með 18 stig.\r\n\r\nNæsti leikur Skallagríms er útileikur gegn Hamri frá Hveragerði næsta þriðjudag og hefst leikurinn klukkan 20.",
  "innerBlocks": []
}
Skallagrímur átti ekki möguleika gegn Haukum - Skessuhorn