Norðaustan hríðarveðri spáð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nú er spáð óveðri víða um land í kvöld og fyrramálið, mánudag, en að þessu sinni verður austan- og norðaustanstæð vindátt. Fyrst mun bresta á með hríðarveðri í Mýrdal á milli klukkan 19 og 21 í kvöld. Hvellurinn gengur síðan til austurs og norðurs í nótt og veldur almennri ófærð mjög víða á landinu. Skafrenningur verður í nótt og fyrramálið teppir líklega vegi m.a. á Hellisheiði og Kjalarnesi. Gul viðvörun er í sumum landshlutum, m.a. suðvesturhorni landsins og sömuleiðis á Vestfjörðum og við Breiðafjörð þar sem verður norðaustan 15-25 m/s, hvassast á fjallvegum. Él og skafrenningur með takmörkuðu skyggni og slæmu ferðaveðri. Viðvörun fyrir Breiðafjörð á við frá klukkan fimm í fyrramálið og til hádegis.",
  "innerBlocks": []
}
Norðaustan hríðarveðri spáð - Skessuhorn