Skagamenn stóðu í Álftnesingum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Álftanes og ÍA áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Forsetahöllinni syðra. Heimamenn komust fljótlega í 12:2 í leiknum og Skagamenn hálf ráðvilltir en staðan eftir fyrsta leikhluta var 30:18 Álftanesi í vil. Þessi slaka byrjun ÍA varð þeim að falli í leiknum því þeir voru síst lakari það sem eftir lifði leiks. Í öðrum leikhluta voru þeir sterkari en heimamenn og náðu að minnka muninn niður í þrjú stig með mikilli baráttu þegar tæplega þrjár mínútur voru til hálfleiks, 42:39 og spenna komin í leikinn. En eftir það náði Álftanes ágætis kafla og staðan í hálfleik 51:43 þeim í vil.\r\n\r\nBaráttan hélt áfram í þriðja leikhluta, ÍA náði að minnka muninn í tvö stig fljótlega en síðan tóku heimamenn góða rispu og voru komnir með tólf stiga forystu um miðjan leikhlutann. ÍA neitaði að gefast upp og náði að minnka muninn í þrjú stig en Álftanes átti síðan góðan sprett og staðan 72:63 fyrir fjórða og síðasta leikhlutann. Þar voru heimamenn vel á varðbergi, hleyptu ÍA aldrei of nálægt og uppskáru að lokum líklegast sanngjarnan sigur, lokatölur 96:83 Álftanesi í hag.\r\n\r\nStigahæstir í liði ÍA voru Cristopher Clover með 24 stig, Lucien Christofis var með 19 stig og Aron Elvar Dagsson með 11 stig og 11 fráköst. Hjá Álftanesi var Cedrick Bowen með 29 stig, Sinisa Bilic með 24 stig og Friðrik Anton Jónsson með 21 stig og 10 fráköst.\r\n\r\nNæsti leikur ÍA er gegn Hamri föstudaginn 4. mars á Akranesi og hefst leikurinn klukkan 19:15.",
  "innerBlocks": []
}
Skagamenn stóðu í Álftnesingum - Skessuhorn