Það var ansi hart barist og um hvern bolta í Stykkishólmi í leiknum í gær. Ljósm. sá

Aþena með sigur á Snæfelli í hörkuleik

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Snæfell og Aþena-UMFK áttust við í gær í 1. deild kvenna í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Stykkishólmi. Fyrir fram var búist við hörkuleik enda bæði lið í efri hluta deildarinnar, Snæfell með 20 stig og Aþena með 16 stig og liðin í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Sú varð raunin og meira en það því það var nánast jafnt á öllum tölum allan tímann. Um miðjan fyrsta leikhluta var staðan 9:6 fyrir Snæfelli en þá tók Snæfell smá kipp og komst í 17:10. Aþena svaraði með næstu sex stigum og staðan 17:16 fyrir heimakonur við flautið. Snæfell byrjaði betur í öðrum leikhluta, reyndar var það Sianni Martin sem tók sig til og skoraði níu stig í röð og kom Snæfelli í þægilega stöðu, 26:16. Hið unga lið Aþenu var ekki á því að gefast upp og hafði jafnað metin um miðjan leikhlutann, 28:28. Baráttan hélt áfram fram að hálfleik en Snæfell átti síðasta orðið með þriggja stiga körfu Rebekku Ránar Karlsdóttur og hafði sex stiga forystu í hálfleik, 40:34.\r\n\r\nÍ þriðja leikhluta mætti Aþena grimmt til leiks, spilaði góða vörn og Snæfell að sama skapi spilaði slakan sóknarleik. Um miðjan leikhlutann komst Aþena yfir 46:48 og hafði síðan eins stigs forystu, 51:52, þegar fjórði og síðasti leikhluti hófst. Aþena byrjaði þar betur, komst í 53:60 fljótlega en síðan náði Snæfell að minnka muninn eftir því sem á leið á leikinn. Þegar aðeins 30 sekúndur voru eftir lagði Snæfell af stað í sókn tveimur stigum undir og freistaði þess að jafna metin eða komast yfir. Sianni Martin tapaði þar boltanum og í kjölfarið virtist hún meiðast illa. Var leikurinn stöðvaður í dágóðan tíma á meðan gert var að sárum hennar og þurfti að kalla til sjúkrabíl. Eftir langt hlé fékk Aþena boltann og í þeirra síðustu sókn braut Rebekka Rán á Elektru Mjöll, leikmanni Aþenu, sem var síðan ísköld á punktinum og setti bæði skotin niður. Snæfell tók leikhlé en tíminn var of naumur og síðasta skot Rebekku Ránar var varið. Tíminn rann síðan út og ansi mikilvægur sigur Aþenu á erfiðum útivelli, lokastaðan 70:74 Aþenu í vil.\r\n\r\nStaðan í deildinni er þannig að Ármann er efstur með 30 stig, ÍR er í öðru sæti með 26 stig og svaka barátta er framundan um hin tvö lausu sætin í úrslitakeppninni. Snæfell er með 20 stig í þriðja sætinu og næst eru Þór Akureyri, Aþena og KR öll með 18 stig og eiga öll inni einn leik á Snæfell.\r\n\r\nStigahæstar í liði Snæfells voru þær Sianni Martin með 41 stig, Rebekka Rán var með 13 stig og Preslava Koleva með 8 stig og 12 fráköst. Hjá Aþenu var Violet Morrow með 22 stig og 16 fráköst, Elektra Mjöll Kubrzeniecka með 12 stig og þær Thea Ólafía Jónsdóttir og Tanja Ósk Brynjarsdóttir með 11 stig hvor.\r\n\r\nNæstu leikir þessara liða eru þeir að Aþena leikur á þriðjudaginn við lið Stjörnunnar á Jaðarsbökkum á Akranesi og hefst leikurinn klukkan 18. Snæfell fer í Grafarvoginn á miðvikudaginn og leikur þar við B lið Fjölnis en leikurinn hefst klukkan 20.30.",
  "innerBlocks": []
}
Aþena með sigur á Snæfelli í hörkuleik - Skessuhorn