
Víkingur AK bakkar inn til löndunar í Akraneshöfn.
Gefa starfsfólki hlutabréf sem þakklætisvott fyrir vel unnin störf
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Rekstrartekjur sjávarútvegsfyrirtækisins Brims á síðasta ári voru 387,9 milljónir evra, eða um 55 milljarðar króna, samanborið við 292,4 milljónir evra árið 2020. Hagnaður ársins í fyrra var 75,2 milljónir evra sem jafngildir á núverandi gengi 10,7 milljörðum króna, en var 4,2 milljarðar króna árið 2020.\r\n\r\nStjórn Brims hefur ákveðið að afhenda fastráðnu starfsfólki hjá félaginu og dótturfélaga hluti í Brimi. Hlutaféð verður í samræmi við starfsaldur hjá félaginu. „Styrkur félagsins felst í öflugu starfsfólki til sjós og lands. Stjórnin þakkar fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og þá sérstaklega síðustu tvö ár í heimsfaraldri Covid og þeim einstöku áskorunum sem við höfum staðið frammi fyrir. Á slíkum tímum verður seint undirstrikað mikilvægi starfsfólks í velferð og árangri félagsins til framtíðar. Áætlað er að þetta séu um sex milljónir hluta og heildarkostnaður Brims er áætlaður um 650 milljónir króna,“ segir í tilkynningu frá Brimi sem gefin var út til að kynna afkomu fyrirtækisins á liðnu ári.\r\n\r\nLoðnuveiðar settu mark sitt á afkomu árins í fyrra en þær fóru fram í febrúar-mars og desember eftir að stærsta úthlutun á loðnukvóta síðustu tveggja áratuga fór fram í október 2021. Uppsjávarsvið félagsins var styrkt frekar með kaupum á þriðja uppsjávarskipinu Svani RE-45. Tekjur af botnfiski hækkuðu frá árinu áður, einkum vegna þess að botnfiskvinnslan í Norðurgarði í Reykjaví var í rekstri allt árið, en vinnslan var lokuð í þrjá mánuði árið 2020 vegna endurnýjunar.\r\n\r\nSkipastóll samstæðu Brims taldi níu skip í árslok, en Höfrungur III AK-250 var seldur á árinu og Svanur RE-45 keyptur. Á árinu 2021 var afli skipa félagsins 51 þúsund tonn af botnfiski og 96 þúsund tonn af uppsjávarfiski samanborið við tæp 46 þúsund tonn af botnfiski árið áður og tæp 82 þúsund tonn af uppsjávarfiski.",
"innerBlocks": []
}