
Haraldur Valtýr og Elísabet alsæl eftir athöfnina. Ljósm. vaks
Ástin blómstraði sem aldrei fyrr í Akraneskirkju
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðastliðinn þriðjudag, 22.02.2022, voru áætluð alls fjórtán svo kölluð „drop in“ brúðkaup í Akraneskirkju. Í þeim hópi voru meðal annars nýgiftu hjónakornin Haraldur Valtýr Hinriksson og Elísabet Sæmundsdóttir sem tóku þá ákvörðun fyrir stuttu að gifta sig á þessari flottu dagsetningu. Þess má geta að þau trúlofuðu sig fyrir tveimur árum, nánar tiltekið þann 20.02.2020. Það var Þóra Björg Sigurðardóttir prestur sem gaf þau saman.\r\n\r\nÁ þriðjudaginn voru alls þrír prestar í Akraneskirkju á vaktinni fram á kvöld en Akraneskirkja annaðist athöfnina án endurgjalds með presti, organista og kirkjuverði. Hver athöfn tók ekki lengri tíma en 30 mínútur og var þetta tilvalinn dagur til að ganga í heilagt hjónaband. Því fyrir utan þessa flottu dagsetningu þá var allt kapp lagt á að þetta yrði hátíðlegt, skemmtilegt og ástin blómstrandi yfir öllum þeim brúðhjónum sem létu verða af því að gifta sig á þessum Drottins dýrðar degi.",
"innerBlocks": []
}