
Vigfús við vinnu sína á bryggjunni í Ólafsvík. Ljósm. af.
Mesti snjóruðningur í áratug í Snæfellsbæ
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fyrirtækið B. Vigfússon sér um snjómokstur í Snæfellsbæ og eru starfsmenn þess vel útbúnir til þeirra verka. „Við erum með tvo traktora með fjölblásara að aftan og svo snjótennur að framan og eina traktorsgröfu að auki,“ segir Vigfús Þráinn Bjarnason snjóruðningsmaður í samtali við Skessuhorn. Hann segir jafnframt að þeir sjái nú tímabundið um snjóruðning á Rifi og Hellissandi vegna veikinda verktakans sem venjulega sér um snjóruðning þar. „Vegna þess bættum við traktorsgröfunni við til þess að hafa undan, en við höfum unnið nánast alla daga í febrúar og það sem er af mánuðinum höfum við rutt talsvert meiru af snjó en allan síðasta vetur, en þá var reyndar óvenjulega snjólétt á Snæfellsnesi. Það koma dagar þar sem við vinnum langt fram á kvöld og erum svo komnir á fætur klukkan fimm á morgnana,“ segir Vigfús að lokum.\r\n\r\nKristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ segir að það hafist ekki undan að ryðja götur og hreinsa burtu snjó. Bæjarstjórinn segir að ekki hafi snjóað svona mikið í tíu ár. „Það kemur mér á óvart hversu mikið hefur snjóað á Hellissandi. Síðastliðinn laugardag var óvenju mikill snjór þar og mikill skafrenningur. Það voru snjóruðningstæki á ferðinni allan daginn fram á kvöldmat við vinnu á Hellissandi. Kostnaður við snjómokstur er nú orðinn margfalt meiri en við bjuggumst við, en þegar öll tæki eru notuð er kostnaður bæjarins þetta 600 til 800 þúsund krónur á dag,“ segir Kristinn.",
"innerBlocks": []
}