Gestasveit Vopna gerði góða ferð á Skagann á laugardaginn. Langefstir á Vesturlandsmóti. Ljósm. Sveinbjörn Eyjólfsson.

Gestirnir úr Vopna báru sigur úr býtum á Vesturlandsmótinu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Vesturlandsmótið í sveitakeppni í bridds fór fram á laugardaginn. Spilað var á Akranesi og tóku sex sveitir þátt. Gestrisnin var mikil á mótinu, því sveit Vopna bar sigur úr býtum með fáheyrðum yfirburðum, eða 87,6 stigum. Sveitina skipuðu þeir Matthías Imsland, Ómar Olgeirsson, Stefán Jónsson, Ísak Örn Sigurðsson og Gunnar B Helgason. Sveit Guðmundar Ólafssonar í Lambhaga varð í öðru sæti með 48,27 stig, en með Guðmundi spiluðu Sveinbjörn Eyjólfsson, Lárus Pétursson, Kristján Pétursson og Eyjólfur Kristinn Örnólfsson. Loks í þriðja sæti með 46,84 stig varð sveit Sveins Hallgrímssonar, en með Vatnshamrabóndanum spiluðu makker hans Flemming Jessen, Sigurður Már Einarsson og Stefán Kalmansson.",
  "innerBlocks": []
}
Gestirnir úr Vopna báru sigur úr býtum á Vesturlandsmótinu - Skessuhorn