Mikael Hrafn Helgason, leikmaður Víkings, mundar skotfótinn í leiknum. Ljósm. mm

Sigur hjá Kára en tap hjá ÍA og Víkingi Ó í Lengjubikarnum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Knattsyrnulið Kára lék gegn Víði í Lengjubikarnum á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Kári komst yfir á 26. mínútu með marki frá Ingimar Elí Hlynssyni og mínútu síðar dró til tíðinda þegar Arnór Björnsson, leikmaður Víðis, fékk beint rautt spjald. Andri Júlíusson bætti við öðru marki fyrir Kára fyrir hálfleik en Víðir minnkaði muninn á 54. mínútu með marki Stefáns Birgis Jóhannessonar. Það var svo ekki fyrr en á síðustu mínútu leiksins sem Ellert Lár Hannesson innsiglaði sigurinn, lokastaðan 3-1 fyrir Kára.\r\n\r\nSkagamenn léku gegn Breiðabliki á laugardagskvöldið á Kópavogsvelli. Heimamenn komust yfir strax á fimmtu mínútu með marki Kristins Steindórssonar en Guðmundur Tyrfingsson jafnaði metin fyrir ÍA á 17. mínútu. Breiðablik missti Elfar Frey Helgason af velli með rautt spjald eftir rúmlega hálftíma leik en það kom ekki að sök því í seinni hálfleik skoruðu Blikar tvö mörk. Fyrst skoraði Benedikt Warén mark fimm mínútum fyrir leikslok en fékk síðan sitt annað gula spjald og þar með rautt rétt áður en Höskuldur Gunnlaugsson bætti við þriðja markinu á lokamínútunni úr víti, niðurstaðan 3-1 fyrir Breiðablik.\r\n\r\nÞað var ansi fjörugur fyrri hálfleikur sem var boðið upp á í gær þegar KFS og Víkingur Ólafsvík mættust í Akraneshöllinni. Víkingur var kominn í 3-0 eftir tæpar 25 mínútur með tveimur mörkum frá Bjarti Bjarma Bjarkasyni og sjálfsmarki leikmanns KFS. Vestmannaeyingar lögðu þó ekki árar í bát og voru búnir að jafna fyrir leikhlé með mörkum frá Daníel Már Sigmarssyni, Frans Sigurðssyni og Ásgeiri Elíassyni. Það var síðan fyrrnefndur Frans sem skoraði fjórða mark KFS í byrjun seinni hálfleiks í ótrúlegum markaleik og lokatölur 4-3 fyrir KFS.",
  "innerBlocks": []
}
Sigur hjá Kára en tap hjá ÍA og Víkingi Ó í Lengjubikarnum - Skessuhorn