Fréttir

true

Ætlar að beita sér fyrir því að RÚV fari af auglýsingamarkaði

Blaðamannafélag Íslands gekkst í dag fyrir ráðstefnu um stöðu fjölmiðla á markaði. Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður BÍ flutti þar ávarp en Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra málefna fjölmiðla var næst í pontu. Um fjárhagsstöðu einkarekinna fjölmiðla færði Lilja í tal ójafna stöðu íslenskra fjölmiðla gagnvart annars vegar erlendum efnisveitum, sem ekki þurfa að innheimta skatt af…Lesa meira

true

Þetta er ekki búið – gul viðvörun tekur gildi í kvöld

Gul viðvörun tekur gildi um allt vestanvert landið í kvöld klukkan 18 og gildir hún m.a. á Faxaflóasvæðinu í rúman sólarhring, fram yfir miðnætti á morgun. Spáð er suðvestan 13-20 m/s og talsverðum éljum á því spásvæði. Viðbúið er að hvassara verði í éljahryðjum og gætu vindhviður farið yfir 35 m/s staðbundið. Skafrenningur og auknar…Lesa meira

true

Fjör í fimleikum á Akranesi um helgina

Um síðustu helgi fór fram GK mótið í hópfimleikum og Haustmótið í stökkfimi í fimleikahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Meistaraflokkur kvenna hjá Fimleikafélagi Akraness náði góðum árangri á mótinu. Þær urðu í fyrsta sæti í gólfæfingum og á dýnu og lentu í öðru sæti í samanlögðum árangri á eftir Gerplu úr Kópavogi. Þá lenti 2.…Lesa meira

true

Einangrun nú fimm dagar í stað sjö

Einangrun vegna Covid-sýkingar verður frá og með deginum í dag stytt úr sjö dögum í fimm samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra. Sem fyrr verður þó heimilt að framlengja einangrun ef þörf krefur samkvæmt læknisfræðilegu mati. Frá sama tíma er afnumin skylda þeirra til að sæta sóttkví eða viðhafa smitgát sem eru með afstaðna sýkingu, staðfesta með PCR-prófi…Lesa meira

true

Aflýsa hættustigi Almannavarna

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjóra á landinu, hefur ákveðið að fara af hættustigi Almannavarna, sem sett var síðdegis í gær vegna óveðurs á landinu. „Hættustigi var lýst yfir á miðnætti í gærkvöldi þegar ljóst var að veðurspá Veðurstofu Íslands sýndi ofsaveður um allt land og mikil hætta var á foktjóni og ófærð. Veðurspáin gekk eftir…Lesa meira

true

Póstbíllinn skrikaði og fór útaf

Færð og veður á vegum hefur verið allavega í morgun vegna lægðarinnar sem gekk yfir landið í nótt og er enn að hafa áhrif. Póstbíll sem ekur með póst á Snæfellsnes fór út af veginum áleiðis á Vatnaleið á níunda tímanum í morgun eftir að hafa lent í krapa á veginum. Var hann á leiðinni…Lesa meira

true

Víða er erfið færð á stofnvegum

Meðfylgjandi mynd er skjáskot af korti Vegagerðarinnar um færð á Vesturlandi núna klukkan 10:08. Samkvæmt því eru vegir víðast hvar opnir en erfið færð. Lokað er á Holtavörðuheiði. Ekki er farið að kanna færð á Heydal, Skógaströnd eða í norðanverðum Dölum. Flughált er á sunnanverðu Snæfellsnesi og snjókoma og krapi er víða á vegum. Unnið…Lesa meira

true

Rafmagnslaust í hluta Melasveitar

Víða um land hafa rafmagnstruflanir orðið í nótt vegna bilana í dreifikerfinu. Hér á Vesturlandi urðu rafmagnstruflanir frá kl. 4:40 í nótt. Eins og staðan er núna er Melasveit frá Skorholti til Hafnar í Hvalfjarðarsveit úti og hluti af Kjós við Kiðafell. Bilanaleit er hafin, segir í tilkynningu frá Rarik.Lesa meira

true

Biðu af sér veðrið í höfninni

Ekki virðist óveðrið hafa valdið miklum usla í Grundarfirði síðustu nótt en rólegt var hjá björgunarsveitinni Klakki á meðan lægðin skreið yfir landið. Heimaskipin voru þó í höfn og bíða af sér mesta óveðrið áður en þau halda til veiða á ný.Lesa meira