Víða er erfið færð á stofnvegum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Meðfylgjandi mynd er skjáskot af korti Vegagerðarinnar um færð á Vesturlandi núna klukkan 10:08. Samkvæmt því eru vegir víðast hvar opnir en erfið færð. Lokað er á Holtavörðuheiði. Ekki er farið að kanna færð á Heydal, Skógaströnd eða í norðanverðum Dölum. Flughált er á sunnanverðu Snæfellsnesi og snjókoma og krapi er víða á vegum. Unnið er að mokstri á norðanverðu Snæfellsnesi og á Bröttubrekku. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að þjóðvegurinn um Hafnarfjall sé lokaður, en hann er þó ekki merktur þannig á meðfylgjandi korti. Engu að síður er veður ennþá slæmt og varhugavert til ferðalaga. Nú spáir snjókomu og því ástæða til að leggja ekki í ferðalög að nauðsynjalausu.\r\n\r\n<strong>Uppfært: Ábending frá Vegagerðinni klukkan 10:15:</strong>\r\n<p style=\"margin-bottom: 0cm;\">\"Hvöss suðvestan átt með dimmum éljum sunnan- og vestantil á landinu, og bætir heldur í vind og samfelldari ofankoma í kvöld með meiri skafrenning og blint þá.\"</p>",
  "innerBlocks": []
}
Víða er erfið færð á stofnvegum - Skessuhorn