Lilja D Alfreðsdóttir í ræðustól. Skjáskot af vef BÍ.

Ætlar að beita sér fyrir því að RÚV fari af auglýsingamarkaði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Blaðamannafélag Íslands gekkst í dag fyrir ráðstefnu um stöðu fjölmiðla á markaði. Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður BÍ flutti þar ávarp en Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra málefna fjölmiðla var næst í pontu. Um fjárhagsstöðu einkarekinna fjölmiðla færði Lilja í tal ójafna stöðu íslenskra fjölmiðla gagnvart annars vegar erlendum efnisveitum, sem ekki þurfa að innheimta skatt af auglýsingasölu, og hins vegar ójafna stöðu smærri fjölmiðla gagnvart sterkri stöðu Ríkisútvarpsins. Lilja rakti í máli sínu hvernig hún hafi þurft á síðasta kjörtímabili að berjast með frumvarp um fjölmiðla í gegnum þingið og mætt á þeirri vegferð andstöðu annarra flokka og jafnvel einnig stórra fjölmiðla sem töldu síst þörf á opinberum stuðningi. Lilja sagði að á þessu kjörtímabili ætlaði hún áfram að leggja sitt lóð á vogarskálina að styrkja stöðu einkarekinna fjölmiðla. Hennar skoðun væri auk þess sú að liður í þá veru væri að RÚV verði ekki áfram þátttakandi á auglýsingamarkaði. Það hefði hins vegar mætt andstöðu þingmanna, meðal annars úr eigin flokki.\r\n\r\n<a href=\"https://www.facebook.com/Bladamannafelagid/videos/1347698605700697\">Hægt er að hlusta á ávarp Lilju og annarra frummælenda á FB síðu Blaðamannafélags Íslands.</a>",
  "innerBlocks": []
}
Ætlar að beita sér fyrir því að RÚV fari af auglýsingamarkaði - Skessuhorn