Þetta er ekki búið – gul viðvörun tekur gildi í kvöld

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Gul viðvörun tekur gildi um allt vestanvert landið í kvöld klukkan 18 og gildir hún m.a. á Faxaflóasvæðinu í rúman sólarhring, fram yfir miðnætti á morgun. Spáð er suðvestan 13-20 m/s og talsverðum éljum á því spásvæði. Viðbúið er að hvassara verði í éljahryðjum og gætu vindhviður farið yfir 35 m/s staðbundið. Skafrenningur og auknar líkur á eldingum, segir í veðurlýsingu spámanna. Líkur eru auk þess á samgöngutruflunum og foktjóni. Mikilli ölduhæð er spáð á miðunum suðvestur og vestur af landinu, allt að 18 m en ölduhæð við ströndina. Nær það hámarki í kvöld og fram á þriðjudag og er spáð 10-12 m.\r\n\r\nVið Breiðafjörð verður suðlæg átt, 13-20 m/s og talsverð snjókoma eða él. Viðbúið að hvassara verði í éljahryðjum og gætu vindhviður farið yfir 30 m/s staðbundið. Skafrenningur og auknar líkur á eldingum. Líkur á samgöngutruflunum. Austanátt, 15-23 m/s og samfelld snjókoma um tíma í kvöld.",
  "innerBlocks": []
}
Þetta er ekki búið - gul viðvörun tekur gildi í kvöld - Skessuhorn