Utan vegar í morgunsárið. Ljósm. þa.

Póstbíllinn skrikaði og fór útaf

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Færð og veður á vegum hefur verið allavega í morgun vegna lægðarinnar sem gekk yfir landið í nótt og er enn að hafa áhrif. Póstbíll sem ekur með póst á Snæfellsnes fór út af veginum áleiðis á Vatnaleið á níunda tímanum í morgun eftir að hafa lent í krapa á veginum. Var hann á leiðinni til Ólafsvíkur þegar óhappið varð. Ökumaðurinn fékk fljótlega aðstoð hjá BB & sonum úr Stykkishólmi og tafðist því stutt á ferð sinni með póstinn.",
  "innerBlocks": []
}
Póstbíllinn skrikaði og fór útaf - Skessuhorn