{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjóra á landinu, hefur ákveðið að fara af hættustigi Almannavarna, sem sett var síðdegis í gær vegna óveðurs á landinu. „Hættustigi var lýst yfir á miðnætti í gærkvöldi þegar ljóst var að veðurspá Veðurstofu Íslands sýndi ofsaveður um allt land og mikil hætta var á foktjóni og ófærð. Veðurspáin gekk eftir og kom fyrsta útkall til björgunarsveitanna um klukkan tuttugu mínútur yfir þrjú í nótt. Síðan hafa björgunarsveitir um land allt sinnt rúmlega 145 verkefnum. Veðrið gekk hratt yfir og greinilegt að almenningur fór eftir ábendingum Almannavarna og viðbragðsaðila að vera ekki á ferðinni,“ segir í tilkynningu frá Almannavörnum.",
"innerBlocks": []
}