
Fólk á leið til sýnatöku í Grundarfirði. Ljósm. úr safni/tfk.
Einangrun nú fimm dagar í stað sjö
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Einangrun vegna Covid-sýkingar verður frá og með deginum í dag stytt úr sjö dögum í fimm samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra. Sem fyrr verður þó heimilt að framlengja einangrun ef þörf krefur samkvæmt læknisfræðilegu mati. Frá sama tíma er afnumin skylda þeirra til að sæta sóttkví eða viðhafa smitgát sem eru með afstaðna sýkingu, staðfesta með PCR-prófi sem er ekki yngra en sjö daga gamalt og ekki eldra en 180 daga.\r\n\r\nEinstaklingur sem er með staðfesta sýkingu af Covid-19 skal vera í einangrun í fimm daga frá greiningu, enda sé hann einkennalaus eða einkennalítill. Með litlum einkennum er átt við væg einkenni frá öndunarfærum og að viðkomandi sé hitalaus (þ.e. hiti lægri en 37,8°C) og hafi verið hitalaus a.m.k. síðastliðinn sólarhring áður en hann losnar úr einangrun. Fylgja skal reglum um smitgát í a.m.k. tvo daga eftir að einangrun lýkur.\r\n\r\nReglugerðin gildir einnig um þá sem eru í einangrun við gildistöku hennar. Það felur í sér að henni lýkur hjá þeim sem þegar hafa verið í einangrun í fimm daga eða lengur þegar reglugerðin tekur gildi 7. febrúar. Allir sem eru að ljúka einangrun frá skilaboð þess efnis í gegnum Heilsuveru og þar með, en ekki fyrr, lýkur einangruninni.",
"innerBlocks": []
}