Fréttir

true

Nýr göngustígur úr Melahverfi að Eiðisvatni

Lokið hefur verið við gerð göngustígs frá Háamel og niður að Eiðisvatni í Hvalfjarðarsveit. Stígurinn er 410 metra langur malarstígur sem hannaður var af verkfræðistofunni Verkís og lagning stígsins var í höndum Hróarstinda. Þetta kemur fram á vefsíðu Hvalfjarðarsveitar. Þar segir einnig að stígurinn sé góð viðbót við útivistarsvæði í Hvalfjarðarsveit þar sem íbúar og…Lesa meira

true

Kynfræðsla fyrir foreldra í Borgarbyggð

Þriðjudaginn 1. febrúar næstkomandi klukkan 20 verður Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir kennari við Grunnskóla Borgarfjarðar með rafrænan fyrirlestur á vegum forvarnarhóps Borgarbyggðar. Fjallað verður um kynfræðslu fyrir foreldra og forráðamenn barna í sveitarfélaginu. Þetta kemur fram á vefsíðu Borgarbyggðar. Farið verður yfir hvernig foreldrar geta rætt um þessi mál við börnin sín, hvað er aldurssamsvarandi þekking,…Lesa meira

true

iTUB og Fiskmarkaður Snæfellsbæjar í samstarf

Fiskmarkaður Snæfellsbæjar hefur gert samstarfssamning við keraleigufyrirtækið iTUB ehf um að iTUB sjái fiskmarkaðnum og þeirra viðskiptavinum fyrir kerum fyrir landaðan afla sem lagður er upp til fiskmarkaðarins á Snæfellsnesi. Fiskmarkaður Snæfellsbæjar var stofnaður árið 2015 í Ólafsvík en selur einnig fisk frá Grundarfirði, Tálknafirði, Sauðárkróki og Akranesi. Uppistaða selds afla er af línu, dragnót…Lesa meira

true

Hefja rannsóknir varðandi uppbyggingu vindmyllugarðs

Qair Iceland ehf. hefur fengið stöðuleyfi fyrir gámi á jörðinni Hvammi í Norðurárdal, en þetta kemur fram í fundargerð byggingafulltrúa Borgarbyggðar frá því á þriðjudaginn. Gámurinn á að vera með mælibúnaði fyrir fuglarannsóknir og til veðurfarsrannsókna. Einnig á að koma fyrir um sex metra hárri vindmyllu og sólarsellum á gáminn til að knýja áfram mælitækin.…Lesa meira

true

Þurftu að millilanda eftir átján bala

Línubáturinn Signý HU er með minni bátum sem róa frá Snæfellsbæ, en gerði heldur betur góðan róður í gær. Gísli Bjarnason skipstjóri rær með tengdaföður sínum Guðmundi Gunnlaugssyni. Þeir fóru út í gærmorgun með 36 bala og komu að landi upp úr klukkan fjögur til þess að millilanda, eins og Gísli orðaði það. „Við drógum…Lesa meira

true

Samþykktu erindisbréf tveggja starfshópa

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Akraneskaupstaðar 17. janúar síðastliðinn voru samþykkt drög að erindisbréfi tveggja starfshópa. Annars vegar starfshóps sem fjalla á um uppbyggingu nýs áhaldahúss Akraneskaupstaðar, en þar verður einnig til húsa vinnuhluti Fjöliðjunnar, svo sem móttaka drykkjarvöruumbúða, og starfsemi Búkollu. Á sama fundi ráðsins var einnig samþykkt erindisbréf starfshóps sem fjalla á um…Lesa meira

true

Snjóhúsið opnað í Grundarfirði

Snjóhúsið – útivistarbúð og klifurhús, var opnað við Sólvelli 8 í Grundarfirði sunnudaginn 16. janúar. Það eru systurnar Marta og Guðbjörg Soffía Magnúsdætur sem opuðu Snjóhúsið en þar eru seldar allar helstu útivistarvörur frá Fjallakofanum. „Við erum í samstarfi við Fjallakofann og getum selt allt frá þeim,“ segir Marta. Aðspurð segir hún hugmyndina að nýju…Lesa meira

true

Vilja reisa vindorkugarð í Hvalfjarðarsveit

Fyrirtækið Zephyr Iceland ehf. hefur áform um að reisa vindorkugarð í landi Brekku í Hvalfjarðarsveit, en þetta kemur fram í fundargerð umhverfis-, skipulags- og náttúruverndarnefndar Hvalfjarðarsveitar frá 19. janúar sl. Þar segir að fyrirhugað sé að reisa allt að 50 MW vindorkugarð í sveitarfélaginu og hefur Zephyr Iceland ehf. fengið EFLU verkfræðistofu til ráðgjafar við…Lesa meira

true

Ríkið sýknað af kröfum fyrrum lögreglumanns á Vesturlandi

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað á mánudaginn upp úrskurð þar sem íslenska ríkið er sýknað af kröfum Þórðar Þórðarsonar vegna ákvörðunar lögreglustjórans á Vesturlandi um að framlengja ekki skipun Þórðar í embætti lögreglumanns. Í júní 2019 fékk Þórður tilkynningu með bréfi um að lögreglustjórinn á Vesturlandi hefði ákveðið að auglýsa stöðu hans laust til umsóknar. En Þórður…Lesa meira

true

Jóhannes Karl ráðinn aðstoðarlandsliðs þjálfari og hættir með ÍA

Jóhannes Karl Guðjónsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari A landsliðs karla og hefur hann þegar tekið til starfa. Hann er því hættur þjálfun meistaraflokks karla hjá ÍA. Þetta var kynnt á vef KSÍ fyrir stundu. Jóhannes Karl lék með KA og ÍA í meistaraflokki hér á landi áður en hann hóf atvinnumannsferilinn þar sem hann lék…Lesa meira