Vilja reisa vindorkugarð í Hvalfjarðarsveit

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fyrirtækið Zephyr Iceland ehf. hefur áform um að reisa vindorkugarð í landi Brekku í Hvalfjarðarsveit, en þetta kemur fram í fundargerð umhverfis-, skipulags- og náttúruverndarnefndar Hvalfjarðarsveitar frá 19. janúar sl. Þar segir að fyrirhugað sé að reisa allt að 50 MW vindorkugarð í sveitarfélaginu og hefur Zephyr Iceland ehf. fengið EFLU verkfræðistofu til ráðgjafar við mat á umhverfisáhrifum framkvæmdar. Zephyr Iceland ehf. og EFLA hafa óskað eftir formlegum forsamráðsfundi með Skipulagsstofnun og leyfisveitendum og hefur Skipulagsstofnun óskað eftir því að Hvalfjarðarsveit eigi fulltrúa á slíkum forsamráðsfundi. „Fulltrúar í umhverfis-, skipulags- og náttúruverndarnefnd munu taka þátt í boðuðum forsamráðsfundi með Skipulagsstofnun vegna málsins,“ segir í fundargerðinni.",
  "innerBlocks": []
}
Vilja reisa vindorkugarð í Hvalfjarðarsveit - Skessuhorn