{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Akraneskaupstaðar 17. janúar síðastliðinn voru samþykkt drög að erindisbréfi tveggja starfshópa. Annars vegar starfshóps sem fjalla á um uppbyggingu nýs áhaldahúss Akraneskaupstaðar, en þar verður einnig til húsa vinnuhluti Fjöliðjunnar, svo sem móttaka drykkjarvöruumbúða, og starfsemi Búkollu. Á sama fundi ráðsins var einnig samþykkt erindisbréf starfshóps sem fjalla á um uppbyggingu Fjöliðjunnar við Dalbraut 8. Á fundi bæjarstjórnar 14. desember sl. var lögð fram bókun þar sem bæjarstjórn lýsti einhuga yfir vilja sínum um uppbyggingu samfélagsmiðstöðvar í nýju húsnæði að Dalbraut 8. Samfélagsmiðstöðin mun hýsa starfsemi Fjöliðjunnar, endurhæfingarhússins HVER ásamt Félagsmiðstöðinni Þorpinu, frístundastarfi fyrir börn og ungmenni.\r\n\r\nUmhverfis- og skipulagsráð samþykkti bæði erindisbréfin fyrir sitt leyti, en fleiri ráð koma að umsögn og að endingu bæjarstjórn.",
"innerBlocks": []
}
Samþykktu erindisbréf tveggja starfshópa - Skessuhorn