Ríkið sýknað af kröfum fyrrum lögreglumanns á Vesturlandi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Héraðsdómur Reykjavíkur kvað á mánudaginn upp úrskurð þar sem íslenska ríkið er sýknað af kröfum Þórðar Þórðarsonar vegna ákvörðunar lögreglustjórans á Vesturlandi um að framlengja ekki skipun Þórðar í embætti lögreglumanns. Í júní 2019 fékk Þórður tilkynningu með bréfi um að lögreglustjórinn á Vesturlandi hefði ákveðið að auglýsa stöðu hans laust til umsóknar. En Þórður hafði starfað sem lögreglumaður frá árinu 1985. Í mars 2015 átti hann samtal við yfirlögregluþjón vegna kvartana sem höfðu borist um framkomu hans. Í nóvember 2018 átti hann aftur samtal, þá við lögreglustjóra og yfirlögregluþjón á Vesturlandi, vegna kvartana frá samstarfsfólki sem hafði ítrekað kvartað yfir framkomu hans. Á þeim fundi var honum kynnt að til greina kæmi að auglýsa stöðu hans lausa til umsóknar vegna þessara samstarfsörðugleika. Í maí 2019 ræddi yfirlögregluþjónn við tvær lögreglukonur sem voru orðnar þreyttar á ástandinu og sögðust íhuga að hætta störfum. Loks í júní sama ár barst kvörtun fimm samstarfsmanna Þórðar yfir einelti og var í kjölfarið ákveðið að auglýsa stöðuna lausa. Þegar Þórður leitaði skýringa var honum sagt að samskiptaörðugleikar við annað starfsfólk væri ástæðan.\r\n\r\nÞórður telur brotið á rétti sínum með ákvörðun lögreglustjórans að framlengja ekki skipun hans í starfi og auglýsa stöðuna þess í stað lausa til umsóknar. Jafnframt telur hann að í ljósi þess að ákvörðun lögreglustjóra megi rekja til þess að samstarsfólk Þórðar hafi kvartað undan honum hafi hann átt að fá andmælarétt og tækifæri til að bæta ráð sitt áður en honum væri sagt upp.\r\n\r\nÍ niðurstöðu dómsins kemur fram að embættismenn geti ekki haft réttmætar væntingar til þess að skipun þeirra í embætti verði framlengt umfram það sem segir í skipunarbréfi. Jafnframt kemur fram að ákvörðunin hafi átt langan aðdraganda og að yfirmenn embættisins höfðu átt samtöl við Þórð vegna þeirra samskiptaörðugleika sem ákvörðunin byggir á. Var því hafnað að Þórður hafi ekki fengið þann andmælarétt sem hann átti rétt á. Með hliðsjón af þessu var það niðurstaða dómsins að ákvörðunin um að auglýsa embættið laust til umsóknar hafi haft skýrar lagaheimildir og var íslenska ríkið því sýknað.",
"innerBlocks": []
}
Ríkið sýknað af kröfum fyrrum lögreglumanns á Vesturlandi - Skessuhorn