Signý að koma að landi úr fyrri róðri dagsins. Ljósm. af.

Þurftu að millilanda eftir átján bala

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Línubáturinn Signý HU er með minni bátum sem róa frá Snæfellsbæ, en gerði heldur betur góðan róður í gær. Gísli Bjarnason skipstjóri rær með tengdaföður sínum Guðmundi Gunnlaugssyni. Þeir fóru út í gærmorgun með 36 bala og komu að landi upp úr klukkan fjögur til þess að millilanda, eins og Gísli orðaði það. „Við drógum fyrst 18 bala og þá var lestin orðin kjaftfull og því ekkert annað í stöðunni en að fara í land. Við skildum 18 bala eftir en fórum út strax eftir löndun til þess að draga restina,“ sagði Gísli. Hann bætir því við að á þessa 18 bala hafi verið níu tonn. „Ég átti ekki til orð, þetta var bara blóðbað,“ sagði Gísli skælbrosandi eftir að hafa landað í seinna skiptið. „Við vorum með í þessum róðri hátt í 17 tonn sem gera um 450 kíló á bala og aflaverðmætið er um sjö milljónir,“ sagði Gísli og var að vonum ánægður með afrakstur dagsins.\r\n\r\nGísli sagði enn fremur að þrátt fyrir vægast sagt mikla ótíð í vetur hafi gengið hratt á kvóta bátsins en þó hefur góður afli verið þegar hægt er að róa. „Við erum allavega hættir í þessum mánuði og byrjum aftur í næsta mánuði til þess að spara kvótann,“ sagði Gísli að endingu.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"50634,50635\"]",
  "innerBlocks": []
}
Þurftu að millilanda eftir átján bala - Skessuhorn