Jóhannes Karl ráðinn aðstoðarlandsliðs þjálfari og hættir með ÍA
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Jóhannes Karl Guðjónsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari A landsliðs karla og hefur hann þegar tekið til starfa. Hann er því hættur þjálfun meistaraflokks karla hjá ÍA. Þetta var kynnt á vef KSÍ fyrir stundu. Jóhannes Karl lék með KA og ÍA í meistaraflokki hér á landi áður en hann hóf atvinnumannsferilinn þar sem hann lék í Belgíu, Hollandi, á Spáni og Englandi. Hann lék alls 34 A-landsleiki fyrir Íslands hönd á árunum 2001-2007 og skoraði eitt mark, og á að auki leiki fyrir U21 og U19 landslið Íslands. Jóhannes Karl er með KSÍ-A þjálfaragráðu og lýkur UEFA Pro gráðu í vor. Hann sneri heim eftir atvinnumennskuna og lék með ÍA, Fram, Fylki og HK áður en hann lagði skóna á hilluna og sneri sér að þjálfun. Þjálfaraferilinn hóf hann hjá HK árið 2016 og var þar við stjórnvölinn þar til hann sneri heim á Skagann árið 2018 og tók við liði ÍA, sem hann hefur stýrt síðan, en lætur nú af því starfi.\r\n\r\nNæsta verkefni A landsliðs karla eru tveir vináttuleikir á Spáni í mars – fyrst gegn Finnum á Stadium Enrique Roca í Murcia 26. mars og síðan gegn Spánverjum 29. mars, á Riazor-leikvanginum í Coruna.",
"innerBlocks": []
}
Jóhannes Karl ráðinn aðstoðarlandsliðs þjálfari og hættir með ÍA - Skessuhorn