
Systurnar Marta og Guðbjörg Soffía opnuðu útivistarbúðina Snjóhúsið í Grundarfirði. Ljósm. aðsend
Snjóhúsið opnað í Grundarfirði
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Snjóhúsið – útivistarbúð og klifurhús, var opnað við Sólvelli 8 í Grundarfirði sunnudaginn 16. janúar. Það eru systurnar Marta og Guðbjörg Soffía Magnúsdætur sem opuðu Snjóhúsið en þar eru seldar allar helstu útivistarvörur frá Fjallakofanum. „Við erum í samstarfi við Fjallakofann og getum selt allt frá þeim,“ segir Marta. Aðspurð segir hún hugmyndina að nýju búðinni ekki hafa verið mjög djúpa. „Þessi hugmynd kviknaði á gamlársdag og við opnuðum búðina 16 dögum seinna. Ég á enn eftir að komast að því hvort þetta var góð eða slæm hugmynd,“ segir hún og hlær. En hvað var það sem kveikti þessa hugmynd? „Ég keypti mér hús um daginn og það fylgdu því þrír verslunarpanilar til að hengja vörur á og svoleiðis. Svo ég ákvað að opna bara verslun,“ segir hún kímin. „En ástæðan fyrir því að við ákváðum að opna útivistarbúð frekar en eitthvað annað er einfaldlega vegna þess að útivist gerir okkur öllum mjög gott og við ættum öll að vera meira úti,“ bætir hún við.\r\n\r\nOpnunartími Snjóhússins er á milli kl. 17:00 og 19:00 alla daga vikunnar. Þá er klifurhúsið einnig opið á sama tíma.",
"innerBlocks": []
}