Fréttir

true

Nýr hjólabrettagarður í íþróttahúsinu á Hellissandi

Í liðinni viku var opnaður hjólabrettagarður í íþróttahúsinu á Hellissandi, en frá því var greint á Facebook síðu Snæfellsbæjar. Hjólabrettagarðurinn var hannaður og settur upp af Sk8roots Project en það er verkefni sem miðar að því að kynna kosti brettaíþrótta fyrir börnum og fullorðnum. Verkefnið er samstarfs Snæfellsbæjar og Umf. Víkings/Reynis og stuðlar að auknum…Lesa meira

true

Gefur út skrá um háhyrninga

Marie-Thérese Mrusczok leiðsögumaður hjá Láki Tours í Grundarfirði og hvalasérfræðingur hjá Náttúrustofu Vesturlands hefur gefið út skrá um háhyrninga sem hafa verið myndaðir við strendur Snæfellsness. Borin hafa verið kennsl á tæplega eitt þúsund mismunandi háhyrninga sem ljósmyndaðir hafa verið við Snæfellsnes. Þetta kemur fram í nýrri skýrsla Orca Guardians og Náttúrustofu Vesturlands. Listinn er…Lesa meira

true

Matís og Stykkishólmsbær taka höndum saman um aukna verðmætasköpun

Stykkishólmsbær og Matís hafa gert með sér samkomulag um samstarf í Stykkishólmi með áherslu á fræðslu, nýsköpun, rannsóknir og atvinnuuppbyggingu innan sveitafélagsins. „Báðir aðilar samkomulagsins munu nýta styrkleika sína og innviði viðkomandi aðila eins og kostur er,“ segir í tilkynningu. Stykkishólmsbær stofnaði til hugarflugsfundar með Matís, KPMG og fulltrúum atvinnulífsins á svæðinu 26. nóvember á…Lesa meira

true

Umræðufundur vegna byggingar íbúða í Dalabyggð

Stjórn Bakkahvamms hses. boðar til umræðufundar með verktökum og iðnaðarmönnum í Dalabyggð varðandi áætlun um byggingu íbúða. Fundurinn verður í fundasal Stjórnsýsluhússins að Miðbraut 11 í Búðardal (2.hæð), fimmtudaginn 20. janúar n.k. klukkan 17. Þetta kemur fram á vefsíðu Dalabyggðar. Bakkahvammur hses. er húsnæðissjálfseignarstofnun sem var stofnuð síðla árs 2019. Hlutverk stofnunarinnar er að byggja…Lesa meira

true

Víða er flughált og fjöldi hálkuslysa

Flughált er nú víða um suðvestanvert landið. Á göngustígum sem ekki eru ruddir er t.d. hálka undir þunnu snjólagi en slíkt býður hættunni heim. Vísir greindi frá því í dag að um þrjátíu manns hafi komið á bráðamóttöku Landspítalans með beinbrot og höfuðhögg og hafa miklar annir verið við að hlúa að fólki og búa…Lesa meira

true

Víkingur kom með fullfermi af loðnu til heimahafnar

Víkingur AK-100 var nú rétt í þessu að koma til hafnar á Akranesi með fullfermi af loðnu til bræðslu, eða 2.800 tonn sem fengust norður af landinu. Víkingur er þriðja loðnuveiðiskipið sem landar á Akranesi á þessari vertíð, en fyrst kom Venus NS á þriðjudaginn og Barði frá Neskaupstað í gærmorgun. Loðnuveiðar ganga nú svo…Lesa meira

true

Sveitarstjórnir kjósa um næsta skref í sameiningarferli

Samstarfsnefnd því fylgjandi að unnið verði að sameiningu Stykkishólms og Helgafellssveitar Samstarfsnefnd sem skipuð var í desember til að fjalla um mögulega sameiningu Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar afgreiddi í gær álit sitt og helstu forsendur og vísaði málinu til tveggja umræðna og kosninga í sveitarstjórnunum. Álitið er á dagskrá bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar og sveitarstjórnar Helgafellssveitar næstkomandi þriðjudag…Lesa meira

true

Akureyringur fær 18 milljónir fyrir 13 rétta

Það var glúrinn tippari sem fékk 13 rétta á enska getraunaseðlinum í gær og vann tæpar 18 milljónir króna. „Tipparinn keypti miðann í getraunaappinu og er þetta hæsti vinningur sem unnist hefur á enska getraunaseðilinn sem keyptur er í appinu. Tipparinn tvítryggði 7 leiki, þrítryggði 1 leik og var með eitt merki á 5 leikjum.…Lesa meira

true

Hamar reiddi til höggs gegn ÍA

ÍA og Hamar mættust í miklum botnbaráttuslag í 1. deild karla í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Hveragerði. Hamar var með fjögur stig í næst neðsta sæti deildarinnar og ÍA með tvö stig í því neðsta áður en leikurinn hófst og því ansi mikilvægur leikur fyrir bæði lið. Skagamenn virtust alls ekki með á…Lesa meira

true

Bókabingó í Búðardal

Það er öllum hollt að lesa og um að gera að byrja nýja árið með lestrargleði. Á vefsíðu Dalabyggðar, dalir.is, er hægt að nálgast nýtt bókabingó sem hægt er að nýta sér bæði til skemmtunar og áskorunar. Bóka- og lestrarbingóið hentar til dæmis yngri lesendum mjög vel. Hægt er að prenta bingóin út eða nálgast…Lesa meira