Afla landað í Stykkishólmi á síðasta ári. Ljósm. sá.

Matís og Stykkishólmsbær taka höndum saman um aukna verðmætasköpun

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Stykkishólmsbær og Matís hafa gert með sér samkomulag um samstarf í Stykkishólmi með áherslu á fræðslu, nýsköpun, rannsóknir og atvinnuuppbyggingu innan sveitafélagsins. „Báðir aðilar samkomulagsins munu nýta styrkleika sína og innviði viðkomandi aðila eins og kostur er,“ segir í tilkynningu. Stykkishólmsbær stofnaði til hugarflugsfundar með Matís, KPMG og fulltrúum atvinnulífsins á svæðinu 26. nóvember á liðnu ári. Fulltrúar atvinnulífsins fjölmenntu og sköpuðust líflegar umræður um tækifærin til aukinnar verðmætasköpunar og eflingu atvinnulífsins er varðar sjálfbæra matvælaframleiðslu á svæðinu.\r\n\r\nJakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri heimsótti, ásamt formanni atvinnu- og nýsköpunarnefndar, fyrirtæki í Stykkishólmi í þeim tilgangi að kynnast betur starfsemi fyrirtækja og stofnana í bænum auk fyrirliggjandi áskorana og tækifæra og kanna með hvaða móti Stykkishólmsbær geti betur stutt við hagsmuni atvinnulífs í sinni stefnumótun og hagsmunagæslu. „Atvinnulífið er grundvöllur byggðar á hverjum stað og lífæð allra samfélaga. Að vera í góðum tengslum við atvinnulífið og skilja þarfir þess er mikilvægt,“ að sögn Jakobs.\r\n\r\nBæjarstjórn Stykkishólmsbæjar skipaði í framhaldinu starfshóp um eflingu atvinnulífs í bænum sem vinnur nú að því að greina tækifæri til eflingar atvinnulífs á grunni svæðisbundinna styrkleika sem mun nýtast við stefnumörkun bæjarins í atvinnumálum. Í starfshópnum eiga sæti fulltrúar frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og Byggðastofnun. Þar er m.a. horft til verðmætasköpunar í tengslum við sjálfbæra nýtingu auðlinda Breiðafjarðar. Er samkomulag Matís ohf. og Stykkishólmsbæjar liður í sömu vegferð. „Með þessu vill Stykkishólmsbær tryggja fyrirtækjum hagstæð skilyrði, vera hreyfiafl góðra verka og styðja við rannsóknir og nýsköpun,“ undirstrikar Jakob.\r\n\r\n<strong>Samningur undirritaður</strong>\r\n\r\nNokkrir fulltrúar atvinnulífsins í Stykkishólmi áttu, ásamt bæjarstjóra og formanni atvinnu- og nýsköpunarnefndar, hugarflugsfund með fulltrúum frá Matís og KPMG 26. nóvember síðastliðinn. Á fundinum voru til umræðu rannsóknir, nýsköpun, sprotastarfsemi, matvælaframleiðsla og ábyrg nýting auðlinda Breiðafjarðar með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda og aukinni verðmætasköpun á svæðinu. Að loknum fundi rituðu Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri og Oddur Már Gunnarsson, forstjóri Matís, undir samkomulag um samstarf Stykkishólmsbæjar og Matís.\r\n\r\n„Mikil gróska og uppbygging á sér stað á sviði sjálfbærrar afurða- og matvælaframleiðslu í Stykkishólmsbæ og er það markmið Stykkishólmsbæjar og Matís að styðja eftir megni við einstaklinga og fyrirtæki á svæðinu til verðmæta- og nýsköpunar í matvælaiðnaði og frekari vinnslu svæðisbundinna afurða, og þannig stuðla að aukinni hagsæld, fæðuöryggi, matvælaöryggi og bættri lýðheilsu fyrir íslenskt samfélag,“ segir í sameiginlegri tilkynningu Matís og Stykkishólmsbæjar.",
  "innerBlocks": []
}
Matís og Stykkishólmsbær taka höndum saman um aukna verðmætasköpun - Skessuhorn