Umræðufundur vegna byggingar íbúða í Dalabyggð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Stjórn Bakkahvamms hses. boðar til umræðufundar með verktökum og iðnaðarmönnum í Dalabyggð varðandi áætlun um byggingu íbúða. Fundurinn verður í fundasal Stjórnsýsluhússins að Miðbraut 11 í Búðardal (2.hæð), fimmtudaginn 20. janúar n.k. klukkan 17. Þetta kemur fram á vefsíðu Dalabyggðar.\r\n\r\nBakkahvammur hses. er húsnæðissjálfseignarstofnun sem var stofnuð síðla árs 2019. Hlutverk stofnunarinnar er að byggja eða kaupa, eiga og hafa umsjón með rekstri og viðhaldi almennra félagsíbúða í Dalabyggð og veita þjónustu í almannaþágu samkvæmt lögum 52/2016 um almennar íbúðir. Aðalstarfsemi Bakkahvamms er rekstur leiguíbúða.\r\n\r\nBakkahvammur hefur nú sótt um og fengið samþykkt stofnframlag til uppbyggingar á þremur 80 fermetra íbúðum í Búðardal á árinu 2022 en verktími er áætlaður frá maí til desember. Fundurinn er ætlaður til þess að kanna áhuga heimamanna og möguleika þeirra til að geta tekið þátt í byggingu íbúðanna. Á fundinum verður farið yfir helstu kostnaðartölur og það umhverfi sem Bakkahvammi og samstarfsaðilum við byggingu er gert að starfa eftir samkvæmt lögum um almennar íbúðir þegar kemur að verkefni sem þessu.",
  "innerBlocks": []
}
Umræðufundur vegna byggingar íbúða í Dalabyggð - Skessuhorn