{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Flughált er nú víða um suðvestanvert landið. Á göngustígum sem ekki eru ruddir er t.d. hálka undir þunnu snjólagi en slíkt býður hættunni heim. Vísir greindi frá því í dag að um þrjátíu manns hafi komið á bráðamóttöku Landspítalans með beinbrot og höfuðhögg og hafa miklar annir verið við að hlúa að fólki og búa um brot. Þá hefur Skessuhorn heimildir fyrir því að hálku sé víða að finna í þéttbýlisstöðum vestanlands, svo sem í Borgarnesi og á Akranesi. Þar hafa sömuleiðis óhöpp orðið í hálkunni í dag og fólk þurft að leita læknisaðstoðar.",
"innerBlocks": []
}
Víða er flughált og fjöldi hálkuslysa - Skessuhorn