{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Það var glúrinn tippari sem fékk 13 rétta á enska getraunaseðlinum í gær og vann tæpar 18 milljónir króna. „Tipparinn keypti miðann í getraunaappinu og er þetta hæsti vinningur sem unnist hefur á enska getraunaseðilinn sem keyptur er í appinu. Tipparinn tvítryggði 7 leiki, þrítryggði 1 leik og var með eitt merki á 5 leikjum. Alls kostaði getraunaseðillinn 5.760 krónur. Tipparinn er frá Akureyri og er stuðningsmaður KA,“ segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá.",
"innerBlocks": []
}
Akureyringur fær 18 milljónir fyrir 13 rétta - Skessuhorn