Forsíða á hinum rafræna lista.

Gefur út skrá um háhyrninga

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Marie-Thérese Mrusczok leiðsögumaður hjá Láki Tours í Grundarfirði og hvalasérfræðingur hjá Náttúrustofu Vesturlands hefur gefið út skrá um háhyrninga sem hafa verið myndaðir við strendur Snæfellsness. Borin hafa verið kennsl á tæplega eitt þúsund mismunandi háhyrninga sem ljósmyndaðir hafa verið við Snæfellsnes. Þetta kemur fram í nýrri skýrsla Orca Guardians og Náttúrustofu Vesturlands.\r\n\r\nListinn er gefinn út sem vísindaskýrsla og er gerð í samvinnu við Náttúrustofu Vesturlands og Orca Guardians Iceland sem Marie er í forsvari fyrir en hún er stofnandi samtakanna. Háhyrningar þekkjast á bakhyrnunni og gráa svæðinu fyrir aftan hana en það er einstakt á hverjum einstaklingi. Með því að safna saman ljósmyndum af bakhyrnum háhyrninga hefur verið unnt að bera kennsl á 961 einstakling á tímabilinu 2011 til 2021. Marie fór í gegnum 330 þúsund myndir sem voru teknar í hvalaskoðunarferðum hjá Láka Tours á þessu tímabili.\r\n\r\nÍ skýrslunni eru einnig myndir frá öðrum svæðum við Ísland. Þar eru myndir frá Steingrímsfirði, Ísafirði, Látrabjargi, Skjálfanda, Borgarfirði eystri, Hvalfirði, Grindavík, Faxaflóa og Vík. Heildarfjöldi þekktra einstaklinga við Íslandsstrendur er 987 en árið 2017 voru þeir ekki nema 322 þannig að fjöldinn hefur aukist gríðarlega síðustu ár.\r\n\r\nSkýrslan er afrakstur átta ára vinnu og mun reynast vel við þá vinnu að fylgjast með og skrásetja háhyrningana í náinni framtíð. Listinn er aðgengilegur á vefsíðunni <a href=\"https://orcaguardians.org/orca-id-catalogues/\">https://orcaguardians.org/orca-id-catalogues/</a>",
  "innerBlocks": []
}
Gefur út skrá um háhyrninga - Skessuhorn