Víkingur kom með fullfermi af loðnu til heimahafnar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Víkingur AK-100 var nú rétt í þessu að koma til hafnar á Akranesi með fullfermi af loðnu til bræðslu, eða 2.800 tonn sem fengust norður af landinu. Víkingur er þriðja loðnuveiðiskipið sem landar á Akranesi á þessari vertíð, en fyrst kom Venus NS á þriðjudaginn og Barði frá Neskaupstað í gærmorgun. Loðnuveiðar ganga nú svo vel að vinnslan hér á landi hefur ekki undan að bræða og var skipum siglt til löndunar í Noregi í vikulokin. Talið er að afkastageta vinnslunnar hér á landi sé um 12 þúsund tonn á sólarhring en veiðigeta flotans er allt að 50 þúsund tonn.\r\n\r\nLoðnan sem nú veiðist er orðin hæf til manneldis og hófst slík vinnsla á Austurlandi í lok vikunnar. Enn er talið að góður mánuður sé í að vinnsla og frysting loðnuhrogna geti hafist, en hún fer m.a. fram á Akranesi.\r\n\r\n[gallery size=\"large\" ids=\"50363,50364,50365\"]",
  "innerBlocks": []
}
Víkingur kom með fullfermi af loðnu til heimahafnar - Skessuhorn