Það var mikið fjör í hjólabrettagarðinum. Ljósm. FB Snb.

Nýr hjólabrettagarður í íþróttahúsinu á Hellissandi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í liðinni viku var opnaður hjólabrettagarður í íþróttahúsinu á Hellissandi, en frá því var greint á Facebook síðu Snæfellsbæjar. Hjólabrettagarðurinn var hannaður og settur upp af Sk8roots Project en það er verkefni sem miðar að því að kynna kosti brettaíþrótta fyrir börnum og fullorðnum. Verkefnið er samstarfs Snæfellsbæjar og Umf. Víkings/Reynis og stuðlar að auknum fjölbreytileika þeirra íþróttagreina sem stendur til boða í sveitarfélaginu. Strákarnir sem standa að verkefninu heita Pétur, Hugo og Stefán. Þeir hafa unnið að því að setja aðstöðuna upp síðustu vikur og fengið góða hjálp úr samfélaginu, meðal annars hafa þeir fengið efnivið, málningu, skrúfur og ýmislegt fleira frá fyrirtækjum og einstaklingum í Snæfellsbæ.\r\n\r\nFyrst um sinn verður opið hús í íþróttahúsinu og allir velkomnir á ákveðnum tímum en þegar fram líða stundir ætla þeir félagar að byrja með skipulagðar æfingar fyrir börn og einstaklinga sem búa við fötlun. Brettagarðurinn opnaði eins og áður sagði í vikunni sem leið og sló í gegn hjá þeim sem komu og prófuðu. Íþróttahúsið á Hellissandi hefur ekki verið í notkun síðustu tvö ár og því fengið nýtt líf með tilkomu hjólabrettagarðsins. Ljóst er að þar verður mikið fjör á næstu misserum því hjólabretti eru skemmtileg íþrótt og fyrir þá sem vilja prófa nýja spennandi íþróttagrein er hér um spennandi tækifæri að ræða.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_50352\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-50352 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/01/Nyr-hjolabrettagardur-i-ithrottahusinu-a-Hellissandi1-600x449.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"449\" /> Pétur, Hugo og Stefán voru ánægðir með verkefnið.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Nýr hjólabrettagarður í íþróttahúsinu á Hellissandi - Skessuhorn