Fréttir

true

Skipstjóraskipti á Ólafi Bjarnasyni

Orri Magnússon hefur tekið við sem skipstjóri á netabátnum Ólafi Bjarnasyni SH af föður sínum Magnúsi Jónassyni. Magnús hefur stýrt Ólafi í sex ár og þar áður var Björn Erlingur Jónasson skipstóri í 42 ár, eða frá því að Ólafur Bjarnason SH kom nýr til Ólafsvíkur frá Akranesi árið 1973. Orri var í sinni jómfrúarferð…Lesa meira

true

Grunnskólinn í Grundarfirði er 60 ára í dag

Í dag á Grunnskóli Grundarfjarðar 60 ára afmæli, en það var 6. janúar árið 1962 sem nýtt húsnæði Barnaskóla Grafarness „á holtinu“ var vígt. Kennsla hófst svo tveimur dögum síðar. Á heimasíðu Grundarfjarðarbæjar er tímamótanna minnst og þar er hægt að finna skemmtilegt safn mynda Bæringsstofu um byggingartíma skólahússins og skólastarfið fyrstu árin. Aðstæður nú…Lesa meira

true

Svandís í beinni í hádeginu – hægt að senda inn spurningar

Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, verður í Beinni línu á Facebook-síðu sinni og VG í hádeginu í dag, 7. janúar klukkan 12:00. „Þetta er kjörið tækifæri til að spyrja ráðherra út í hvaðeina sem brennur á fólki,“ segir í tilkynningu. Þá á það jafnt við um núverandi málaflokka, loftslagsmálin, hvort hún sakni allra Covid-tengdu verkefnanna…Lesa meira

true

Smit kom upp í Brákarhlíð

Covid smit hefur komið upp hjá starfsmanni Brákarhlíðar í Borgarnesi. Framkvæmd voru hraðpróf hjá heimilisfólki og starfsfólki og hefur eitt smit til viðbótar verið staðfest með PCR prófi. Um er að ræða einkennalausan einstakling á heimilinu Tjörn og hefur það heimili því verið sett í einangrun. Í frétt á vef Brákarhlíðar segir að reynt sé…Lesa meira

true

Nýr rekstraraðili N1 í Ólafsvík

Í byrjun árs tók Einar R Ísfjörð við sem rekstrarstjóri hjá N1 í Ólafsvík. Einar sagði í stuttu spjalli við fréttaritara Skessuhorns að hann hafi verið rekstrarstjóri hjá N1 í Staðarskála í Hrútafirði undanfarin sjö ár og þar áður starfað í Keflavík. „Mér var boðið þessi staða og þáði hana,“ sagði Einar. „Ég mun sjá…Lesa meira

true

Mögulegt að uppfylltum skilyrðum að skipta búsetu barns

Breytingar á barnalögum um skipta búsetu barns, sem tóku gildi í ársbyrjun, gera ráð fyrir að foreldrar geti samið um skipta búsetu barns við tilteknar aðstæður. Forsendur þess að semja um skipta búsetu barns eru þær að foreldrar geti komið sér saman um atriði er snúa að umönnun og uppeldi barnsins. Hægt verður að gera…Lesa meira

true

Hvalaskoðunin komin af stað aftur

Hvalaskoðunarbáturinn Íris hjá Láki Tours í Grundarfirði hefur verið að sigla með ferðamenn undanfarna daga í von um að sjá þessi stóru spendýr spóka sig um í íslenskri lögsögu. Hvalaskoðunarferðirnar hófust aftur 20. desember síðastliðinn og hafa verið farnar nokkrar ferðir yfir hátíðarnar og svo núna í byrjun janúar. Samkvæmt heimasíðu Láki Tours hefur verið…Lesa meira

true

Kristín kjörin Íþróttamaður Akraness

Kraftlyftingakonan Kristín Þórhallsdóttir var í kvöld kjörin Íþróttamaður Akraness árið 2021 en úrslitin voru kunngjörð á Garðavöllum á Akranesi. Í öðru sæti í kjörinu var sundmaðurinn Enrique Snær Llorens Sigurðsson og badmintonkonan Drífa Harðardóttir í þriðja sæti. Þetta er í annað sinn sem Kristín hlýtur þennan titil en hún var einnig kjörin í fyrra.  Lesa meira

true

Rauk úr bíl

Slökkvilið Borgarbyggðar fór nú síðdegis í lítið útkall. Reyk lagði frá mannlausum jeppling sem lagt var framan við Borgarbraut 61 í Borgarnesi. Eldur var ekki laus í bílnum en einhvers konar samleiðsla hafði orðið. Slökkvilið aftengdi rafgeymi og beitti hitamyndavél til að útiloka að glæður leyndust í bílnum.Lesa meira

true

Randi tekur við Reiðmanninum hjá LbhÍ

Randi Holaker hefur tekið við sem verkefnastjóri í Reiðmanninum hjá Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. „Randi er fædd og uppalin rétt fyrir utan Osló í Noregi. Hún er menntuð hjúkrunarfræðingur, með grunnmenntun í kennslufræði, sem og tamningarmaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Randi er gæðingadómari, hefur lokið fyrri hluta íþróttadómaranáms, er knapamerkjadómari og með…Lesa meira