
Ljósm. úr safni Bærings Cecilssonar.
Grunnskólinn í Grundarfirði er 60 ára í dag
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í dag á Grunnskóli Grundarfjarðar 60 ára afmæli, en það var 6. janúar árið 1962 sem nýtt húsnæði Barnaskóla Grafarness „á holtinu“ var vígt. Kennsla hófst svo tveimur dögum síðar. Á heimasíðu Grundarfjarðarbæjar er tímamótanna minnst og þar er hægt að finna skemmtilegt safn mynda Bæringsstofu um byggingartíma skólahússins og skólastarfið fyrstu árin.\r\n\r\nAðstæður nú bjóða ekki uppá mannfagnað á afmælisdeginum; „en í tilefni afmælisins mun öll þessi önn (sem vonandi verður fljótlega laus við takmarkanir) taka mið af afmælinu í þemastarfi skólans,“ segir í frétt á vef Grundarfjarðarbæjar. „Þegar færi gefst á næstu mánuðum verður íbúum og öðrum velunnurum skólans boðið til samkomu til að fagna afmælinu.“ Þar kemur einnig fram að í dag getur skólinn flaggað Grænfánanum í annað skiptið. Starfsfólk hefur unnið að undirbúningi grænfánatilnefningar og fékk svonefnd úrbótaáætlun (verkefnisáætlun) skólans staðfestingu í dag.\r\n\r\n<strong>Vígt á þrettándanum</strong>\r\n\r\nÍ samantekt sem Gunnar Kristjánsson, fyrrverandi skólastjóri, tók saman árið 2002 þegar skólinn var 40 ára, sagði m.a:\r\n\r\n„Skólahúsnæðið í Samkomuhúsinu sem byrjað var að kenna í haustið 1944 varð fljótlega of lítið vegna örrar fólksfjölgunar í Grafarnesi. Í gegnum tíðina hafa það verið örlög skólabygginga á staðnum að vera þegar orðnar of litlar þegar þær eru teknar í notkun. Smíði nýs skólahúsnæðis var reifuð við fræðslumálayfirvöld árið 1956 enda orðið aðkallandi að hús sem eingöngu væri notað sem skóli risi í hinu ört vaxandi byggðarlagi.“\r\n\r\nÞá segir í upprifjun Gunnars: „Haustið 1959 var síðan hafin smíði nýs barnaskóla þar sem honum hafði verið valinn staður á holtinu efst við Borgarbraut. Fullbyggt var hið nýja skólahúsnæði, ofan við Sjónarhól, vígt formlega á þrettándanum hinn 6. janúar 1962. Arkitekt var Guðmundur Guðjónsson. Yfirsmiður skólabyggingar var Björn Guðmundsson. Sigurberg Árnason trésmíðameistari og síðar byggingafulltrúi í Grundarfirði var nemi á fyrsta ári í trésmíðum þegar skólinn var í byggingu og man eftir því að hann vann við að smíða innréttingarnar í skólann á verkstæði Björns sem staðsett var í Hlöðunni hennar Kristínar frá Búðum en hún mun hafa verið vestan við vélsmiðju Bærings eða Smiðjunnar sem svo er enn kölluð og hýsir í dag (2002) bókasafn, fjarnám og Slökkvistöð ásamt áhaldahúsi sveitarfélagsins.“\r\n\r\nHúsnæði grunnskólans hefur tvívegis verið stækkað frá byggingu hans 1962, þ.e. árin 1975-1978 og 1998-2000, auk þess sem sundlaug var tekin í notkun haustið 1976 og voru þá 190 börn í skólasundi. Laugin var svo endurbætt 2009. Íþróttahús var síðan vígt og tekið í notkun haustið 1989.\r\n\r\n<a href=\"https://www.grundarfjordur.is/is/frettir-og-tilkynningar/grunnskolinn-60-ara-i-dag\">Á heimasíðu Grundarfjarðarbæjar eru nú birtar myndir úr ljósmyndasafni Bærings Cecilssonar m.a. af skólabyggingunni og skólastarfi á holtinu.</a>\r\n\r\n[caption id=\"attachment_50097\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-50097 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/01/Grunnskolinn-i-Grundarfirdi-sextiu-ara_2-600x398.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"398\" /> Texti frá Bæring: Frá skákmóti í Grundarfirði 1977.[/caption]",
"innerBlocks": []
}