Svandís í beinni í hádeginu – hægt að senda inn spurningar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, verður í Beinni línu á Facebook-síðu sinni og VG í hádeginu í dag, 7. janúar klukkan 12:00. „Þetta er kjörið tækifæri til að spyrja ráðherra út í hvaðeina sem brennur á fólki,“ segir í tilkynningu. Þá á það jafnt við um núverandi málaflokka, loftslagsmálin, hvort hún sakni allra Covid-tengdu verkefnanna í heilbrigðisráðuneytinu eða annað. Hægt er að senda spurningar á: vg@vg.is\r\n\r\n„Vinstri græn standa reglulega fyrir Beinni línu á samfélagsmiðlum til að gefa fólki tækifæri á að kynnast forystufólki hreyfingarinnar betur og spyrja þau um málefni sem brennur á því,“ segir í tilkynningu frá VG.",
  "innerBlocks": []
}
Svandís í beinni í hádeginu - hægt að senda inn spurningar - Skessuhorn