Íris kemur í land með ánægða ferðamenn eftir góða ferð mánudaginn 3. janúar. Ljósm. tfk.

Hvalaskoðunin komin af stað aftur

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hvalaskoðunarbáturinn Íris hjá Láki Tours í Grundarfirði hefur verið að sigla með ferðamenn undanfarna daga í von um að sjá þessi stóru spendýr spóka sig um í íslenskri lögsögu. Hvalaskoðunarferðirnar hófust aftur 20. desember síðastliðinn og hafa verið farnar nokkrar ferðir yfir hátíðarnar og svo núna í byrjun janúar. Samkvæmt heimasíðu Láki Tours hefur verið hægt að sjá hnúfubaka, háhyrninga og höfrunga í þessum ferðum og upplifun ferðamanna verið góð.",
  "innerBlocks": []
}
Hvalaskoðunin komin af stað aftur - Skessuhorn