Randi sýnir hér Sóló frá Skáney á Landsmóti fyrir tíu árum. Ljósm. úr safni Skessuhorns/ KG.

Randi tekur við Reiðmanninum hjá LbhÍ

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Randi Holaker hefur tekið við sem verkefnastjóri í Reiðmanninum hjá Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. „Randi er fædd og uppalin rétt fyrir utan Osló í Noregi. Hún er menntuð hjúkrunarfræðingur, með grunnmenntun í kennslufræði, sem og tamningarmaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Randi er gæðingadómari, hefur lokið fyrri hluta íþróttadómaranáms, er knapamerkjadómari og með réttindi til og hefur tekið virkan þátt í að dæma gæðingafimi,“ segir í tilkynningu frá skólanum.\r\n\r\nRandi býr á Skáney í Reykholtsdal í Borgafirði ásamt Hauki Bjarnasyni og tveimur dætrum þeirra. Þar reka þau hrossaræktarbú í mjög góðri aðstöðu og eru með ræktun, kennslu, þjálfun og sölu hrossa. Á Skáney er eitt elsta hrossaræktarbú landsins en ræktunin hefur staðið síðan 1944. Það var afi Hauks, Marinó Jakobsson, sem hóf markvissa ræktun á býlinu og árið 1958 fæðist honum rauðblesóttur hestur sem hann kallar Blesa. Blesi þessi er ættfaðir flestra hrossa á Skáney í dag. Bjarni Marinósson og Birna Hauksdóttir hafa eftir daga Marinós staðið fyrir búinu á Skáney og nú síðari árin ásamt þeim Hauki og Randi.\r\n\r\n„Randi hefur brennandi áhuga á reiðkennslu og býr yfir mikilli reynslu á því sviði bæði innanlands og erlendis. Þá hefur hún sinnt kennslu við Landbúnaðarháskóla Íslands í nokkur ár. Við bjóðum Randi hjartanlega velkomna til starfa hjá Endurmenntum LbhÍ og hlökkum til samstarfsins við að gera öflugt nám í Reiðmanninum enn betra,“ segir í tilkynningu skólans.",
  "innerBlocks": []
}
Randi tekur við Reiðmanninum hjá LbhÍ - Skessuhorn