Mögulegt að uppfylltum skilyrðum að skipta búsetu barns

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Breytingar á barnalögum um skipta búsetu barns, sem tóku gildi í ársbyrjun, gera ráð fyrir að foreldrar geti samið um skipta búsetu barns við tilteknar aðstæður. Forsendur þess að semja um skipta búsetu barns eru þær að foreldrar geti komið sér saman um atriði er snúa að umönnun og uppeldi barnsins. Hægt verður að gera samning um skipta búsetu barns og óska staðfestingar sýslumanns eða gera dómsátt um skipta búsetu barns hjá dómstólum. Ekki er gert ráð fyrir að sýslumaður eða dómstóll geti úrskurðað eða dæmt skipta búsetu barns þegar foreldra greinir á. „Forsenda fyrir skiptri búsetu barns er jafnframt að heimili barnsins séu nálægt hvor öðru og að barn sé í einum skóla eða leikskóla og eigi greiðan aðgang að tómstundastarfi og öðrum frístundum frá báðum heimilum án þess að fjarlægðir standa í veg fyrir því,“ segir í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu. Skipt búseta mun fela í sér að allar ákvarðanir varðandi barn, bæði meiri háttar ákvarðanir og afgerandi ákvarðanir um daglegt líf barns verða teknar sameiginlega af báðum foreldrum.\r\n\r\nLögin tóku gildi um áramót og þeir foreldrar sem vilja skrá skipta búsetu barns geta nú hafið ferlið með því að panta viðtalstíma. Viðtal foreldra er sameiginlegt og fer fram hjá sýslumanni í því umdæmi sem barnið býr.",
  "innerBlocks": []
}
Mögulegt að uppfylltum skilyrðum að skipta búsetu barns - Skessuhorn