Orri og Magnús í brúnni. Ljósm. af.

Skipstjóraskipti á Ólafi Bjarnasyni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Orri Magnússon hefur tekið við sem skipstjóri á netabátnum Ólafi Bjarnasyni SH af föður sínum Magnúsi Jónassyni. Magnús hefur stýrt Ólafi í sex ár og þar áður var Björn Erlingur Jónasson skipstóri í 42 ár, eða frá því að Ólafur Bjarnason SH kom nýr til Ólafsvíkur frá Akranesi árið 1973. Orri var í sinni jómfrúarferð sem skipstjóri á mánudaginn og var faðir hans Magnús með í ferðinni syninum til halds og trausts, að sögn Magnúsar. Hann mun verða í nokkra daga um borð til þess að koma Orra vel inn í netaveiðarnar.\r\n\r\nEins og svo oft áður var Ólafur Bjarnason SH með þeim fyrstu til að landa í Ólafsvík á nýju ári. Landaði sjö tonnum af góðum þorski á mánudaginn sem fékkst í sjö trossur. Á sunnudag landaði netabáturinn Bárður SH 17 tonnum í Rifi sem jafnframt var fyrsti aflinn sem berst að landi í Snæfellsbæ á nýju ári.",
  "innerBlocks": []
}
Skipstjóraskipti á Ólafi Bjarnasyni - Skessuhorn