Fréttir

true

Jólatré sótt á Akranesi í byrjun næstu viku

Akraneskaupstaður býður upp á hirðingu jólatrjá mánudaginn 10. janúar og þriðjudaginn 11. janúar næstkomandi en frá þessu segir á vef bæjarins. Það eina sem íbúar þurfa að gera er einfaldlega að setja jólatrén út við götu. Bent er á að einungis jólatré verða tekin, ekki annað sorp. Þá hvetur Akraneskaupstaður bæjarbúa til að ganga vel…Lesa meira

true

Nýr verðlaunagripur í kjöri Íþróttamanns Akraness

Íþróttamaður Akraness, sem verður krýndur í kvöld á Garðavöllum á Akranesi, fær í fangið nýjan bikar þegar hann tekur við verðlaununum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íþróttabandalagi Akraness sem birt var á vefsíðu bandalagsins í gær. Frá árinu 1977 hefur kjör Íþróttamanns Akraness verið árviss viðburður og var núverandi bikar, Friðþjófsbikarinn, fyrst afhentur árið…Lesa meira

true

Veruleg fjölgun smitaðra milli daga

Smituðum af Covid-19 á Vesturlandi fjölgaði um 31 milli daga, eru nú 210. Auk þess eru 227 í sóttkví í landshlutanum. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi. Aukningin er öll á Akranesi og á svæði heilsugæslustöðvar HVE í Borgarnesi. Nú eru 76 í einangrun á Akranesi og 139 í sóttkví; í Borgarnesi…Lesa meira

true

Leikskólastarf í 45 ár í Grundarfirði

Síðastliðinn þriðjudag voru 45 ár frá því að leikskólastarf hófst í Grundarfirði en það var 4. janúar árið 1977 sem opnaður var leikskóli í húsi grunnskólans. 15. nóvember sama ár varð Leikskólinn Sólvellir svo til, þegar starfsemin flutti úr grunnskólanum í eigið húsnæði að Sólvöllum 1, þar sem hann er enn í dag. Frá þessum…Lesa meira

true

Um fimm prósent þjóðarinnar í sóttkví eða einangrun

Í gær voru 1.378 greindir á landinu með kórónuveiruna. Af þeim voru rúmlega 300 smit greind á landamærunum sem er nýtt met. Yfir sautján þúsund manns eru nú í sóttkví eða einangrun eða nærri fimm prósent þjóðarinnar. Um tíu prósent þjóðarinnar hefur nú greinst með veiruna. Fréttavefur Ríkisútvarpsins hefur það eftir fulltrúa Almannavarna að flest…Lesa meira

true

Tíu prósenta aukning löndunar í Snæfellsbæ

Afli báta frá Snæfellsbæ var mjög góður árið 2021, eða samtals 35.539 tonn, en árið 2020 var landaður afli 32.304 tonn. Þetta er því 10% aukning milli ára. Allar þessar tölur miðast við óslægðan afla. Hafnir Snæfellsbæjar eru þrjár og var landað 1.647 tonnum á Arnarstapa árið 2021 á móti 1.784 tonnum árið 2020. Í…Lesa meira

true

Há sjávarstaða í höfnum

Á flóði í morgun höfðu menn gert ráð fyrir að gefið gæti yfir í höfnum í kjölfar lægðarinnar sem kom upp að landinu. Bátar voru því vel bundnir og sumsstaðar höfðu þeir verið teknir upp. Í höfninni á Arnarstapa voru þannig engir bátar, en þar gekk sjór upp á bryggjuna og færði til karasamstæðu. Í…Lesa meira

true

Akurey kom inn til löndunar í Grundarfirði

Nú í morgun kom Akurey AK inn til löndunar í Grundarfirði. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd var mjög stórstreymt þegar skipið lagðist að bryggju og talsverður vindur. Því pusaði vel yfir flutningabílana sem biðu á hafnarkantinum eftir að taka við aflanum úr skipinu og flytja til vinnslu. Aflinn var um 140 tonn, einkum…Lesa meira

true

Engin óveðursútköll í gærkvöldi og nótt

Ekkert tjón eða útkall af völdum hvassviðris er skráð í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi í gærkvöldi og nótt. Miðað við veðurspá slapp landshlutinn því betur en búist hafði verið við vegna djúprar lægðar sem teygði anga sína inn á landið. Samkvæmt sjálfvirkum vindhraðamælum varð mest rok á veginum við Hafnarfjall, en þar sló vindur upp…Lesa meira

true

Líkar mjög vel hjá FC Kaupmannahöfn

Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson er þegar byrjaður að láta að sér kveða hjá FC Kaupmannahöfn í danska boltanum. Hann hefur nú leikið átta leiki með aðalliði félagsins, þann fyrsta gegn Vejle í dönsku Superligunni í 3:0 sigri nú í lok október. Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið í leiknum…Lesa meira