Um hundrað óveðursútköll bárust á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi. Þessi mynd er úr höfuðborginni. Ljósm. Landsbjörg.

Engin óveðursútköll í gærkvöldi og nótt

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ekkert tjón eða útkall af völdum hvassviðris er skráð í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi í gærkvöldi og nótt. Miðað við veðurspá slapp landshlutinn því betur en búist hafði verið við vegna djúprar lægðar sem teygði anga sína inn á landið. Samkvæmt sjálfvirkum vindhraðamælum varð mest rok á veginum við Hafnarfjall, en þar sló vindur upp í 57,3 m/sek í hviðu laust fyrir klukkan eitt í nótt. Á Fróðárheiði fór vindur einu sinni upp í 40 m/sek og á Kjalarnesi mest í 34,6 m/sek. Lægðin olli því minni usla í landshlutanum en búist hafði verið við, en m.a. voru björgunarsveitir í viðbragðsstöðu vegna slæmrar veðurspár.\r\n\r\nFjöldi útkallsbeiðna barst hins vegar björgunarsveitum og lögreglu á Suðurnesjum, í Vestmannaeyjum, Þorlákshöfn og á höfuðborgarsvæðinu. Sinntu björgunarsveitir þar um hundrað útköllum vegna óveðurs, samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörgu.\r\n\r\nRafmagnsbilun varð klukkan 3 í nótt í Saurbæ í Dölum, á Fellsströnd og Skarðsströnd. Samkvæmt vef Rarik lauk viðgerð klukkan 07:17 í morgun.",
  "innerBlocks": []
}
Engin óveðursútköll í gærkvöldi og nótt - Skessuhorn