Leikskólabörn í Grundarfirði á göngu fyrir einhverjum árum síðan. Ljósm. Bæring Cecilsson.

Leikskólastarf í 45 ár í Grundarfirði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Síðastliðinn þriðjudag voru 45 ár frá því að leikskólastarf hófst í Grundarfirði en það var 4. janúar árið 1977 sem opnaður var leikskóli í húsi grunnskólans. 15. nóvember sama ár varð Leikskólinn Sólvellir svo til, þegar starfsemin flutti úr grunnskólanum í eigið húsnæði að Sólvöllum 1, þar sem hann er enn í dag. Frá þessum tímamótum segir á vefsíðu Grundarfjarðarbæjar. Þar er einnig hægt að lesa um sögu Leikskólans Sólvalla og er hér gripið niður í þá frásögn:\r\n\r\n„Áður en leikskóli var settur á stofn í Grundarfirði var rekinn gæsluvöllur fyrir börn undir skólaaldri. Það voru kvenfélagið Gleym mér ei og Eyrarsveit sem ráku völlinn á sumrin árin 1966-1979. Leikvöllurinn var byggður árið 1963 og var á opna svæðinu á milli Grundargötu, Hlíðarvegs og Borgarbrautar í Grafarnesi (nú oftast nefnt Þríhyrningur). Síðan var það árið 1974 að nokkrar konur í Grundarfirði komu saman og ákváðu að kanna viðhorf sveitarfélagsins og vinnuveitenda til leikskólareksturs, sem þær og gerðu. Ekki var mikill áhugi fyrir hendi hjá forystumönnum sveitarfélagsins eða atvinnurekendum og meðal annars sagði einn þeirra; „elskurnar mínar, hjá mér eru allar konur komnar úr barneign,“ og fór málið ekki lengra í bili. Árið 1976 var ákveðið að byggja leikskóla á Sólvöllum 1 og voru það Rauðakrossdeildin og sveitarfélagið sem stóðu að byggingunni. Valin var bygging frá Einingarhúsum á Siglufirði sem reistu húsið. Í húsinu var ein deild með 42 börnum (21 barn í einu), starfsmannaaðstaða (skrifstofa, kaffistofa, salerni) og geymsla. Framlag Rauðakrossdeildarinnar fólst að mestu í sjálfboðavinnu sem félagar inntu af hendi (málningarvinna og annað). Þann 15. nóvember árið 1979 var Leikskólinn svo formlega opnaður.“\r\n\r\nVegna ytri aðstæðna var ekki hægt að efna til samkomu af einhverju tagi í tilefni afmælisins en á morgun, föstudag, munu nemendur og starfsfólk gera sér glaðan dag með kökum og blöðrum og einhverju skemmtilegu.",
  "innerBlocks": []
}