Kristín Þórhallsdóttir, íþróttamaður Akraness árið 2020, einhendir hér Friðþjófsbikarinn sem var í fyrra afhentur í síðasta skipti. Ljósm. mm

Nýr verðlaunagripur í kjöri Íþróttamanns Akraness

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Íþróttamaður Akraness, sem verður krýndur í kvöld á Garðavöllum á Akranesi, fær í fangið nýjan bikar þegar hann tekur við verðlaununum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íþróttabandalagi Akraness sem birt var á vefsíðu bandalagsins í gær. Frá árinu 1977 hefur kjör Íþróttamanns Akraness verið árviss viðburður og var núverandi bikar, Friðþjófsbikarinn, fyrst afhentur árið 1991 og hefur því verið afhentur í 30 skipti. Nú hefur sú ákvörðun verið tekin að leggja hann til hliðar til varðveislu hjá ÍA.\r\n\r\nVið þessi tímamót hefur verið ákveðið að taka í notkun nýjan bikar og hefur hann fengið nafnið Helgi Dan bikarinn, til minningar um Helga Daníelsson. Helgi Dan var öðrum fremur sá sem kom að því að Íþróttamaður Akraness skyldi valinn árið 1965 og gerði hann það í minningu bróður síns Friðþjófs sem lést ungur af slysförum. Helga Dan þarf vart að kynna fyrir Skagamönnum en hann var ötull félagsmaður í starfi ÍA allt fram á síðasta dag en Helgi starfaði sem rannsóknarlögreglumaður og ljósmyndari á sínum starfsferli.\r\n\r\nHelga Dan bikarinn er gefinn af syni Helga, Steini Helgasyni, konu hans Elínu Klöru og börnum þeirra, Steindóru, Írisi, Helga Dan, Helenu og Marellu.",
  "innerBlocks": []
}
Nýr verðlaunagripur í kjöri Íþróttamanns Akraness - Skessuhorn